138. löggjafarþing — 70. fundur,  29. jan. 2010.

stjórn Ríkisútvarpsins.

[12:37]
Horfa

Þráinn Bertelsson (U):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. menntamálaráðherra fyrir svörin. Ég vísa þó á bug þeirri röksemdafærslu menntamálaráðherra að hliðstæðu sé að finna fyrir þessum niðurskurði sem íslensk kvikmyndagerð varð fyrir. Það er ekki á menningarsviðinu, engin grein íslenskrar menningar hefur verið skorin svona niður.

Nú spyr ég menntamálaráðherra sem virðist að einhverju leyti meðvituð um þann vanda sem við er að etja: Stendur til að þessari ógæfusömu stofnun, Ríkisútvarpinu, verði skipaður nýr stjórnandi, nýr útvarpsstjóri, og að hlustað verði með skilningi á þau rök sem íslenskir kvikmyndagerðarmenn hafa fram að færa og séð til þess í framtíðinni að þeir hafi eitthvað að segja um það hvernig þessi mikla og nauðsynlega menningarstofnun er rekin? Hana á að reka í þágu allrar þjóðarinnar.