138. löggjafarþing — 70. fundur,  29. jan. 2010.

stjórn Ríkisútvarpsins.

[12:38]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Hvað varðar síðari hluta spurningarinnar nefndi ég í mínu fyrra svari að ég hef fyrirhugað fund með stjórn Ríkisútvarpsins þar sem farið verður yfir þessi sjónarmið. Ég get líka vottað að stjórnin er mjög meðvituð um þessi sjónarmið. Síðast í gær sat ég á fundi ásamt stjórnarformanni Ríkisútvarpsins með a.m.k. 200 manns þar sem mjög ítarlega var farið yfir þau sjónarmið sem hv. þm. Þráinn Bertelsson reifar hér.

Hvað varðar stjórnendur Ríkisútvarpsins er það stjórn Ríkisútvarpsins sem ræður stjórnanda Ríkisútvarpsins.