138. löggjafarþing — 70. fundur,  29. jan. 2010.

fjármálafyrirtæki.

343. mál
[13:04]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég fagna því frumvarpi sem hér er lagt fram um breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki og tel að frumvarpið boði sterkt regluverk og virkt eftirlit sem leggur grunn að heilbrigðu fjármálakerfi og eykur þar með traust á því bæði innan lands og utan. Má segja að ekki veiti af.

Mig langar að fá mat hæstv. ráðherra á því hvort hann telji ástæðu til að löggjafinn kveði skýrar á um aðskilnað viðskipta- og fjárfestingarbankastarfsemi. Vísa ég þá í umræðu sem nú á sér stað í Bandaríkjunum um fjármálakerfi þar og breytingar á reglum og lögum um endurupptöku á svokallaðri Glass-Steagall-löggjöf. Ég óska eftir mati ráðherra á því hvort hann telji að löggjafinn eigi að skoða þetta sérstaklega.