fjármálafyrirtæki.
Virðulegi forseti. Það er vitaskuld engin vanþörf á því að efla eða endurvekja traust landsmanna og reyndar einnig fólks utan landsteinanna á íslenska fjármálakerfinu. Til að það traust verði endurvakið þarf auðvitað að gera ýmislegt. Það þarf fyrst að breyta þessum stofnunum og breyta regluverki þeirra. Síðan þarf að skýra fyrir umheiminum, bæði innan lands og utan, hvað hefur verið gert. Þar er mikið verk óunnið. Ég viðurkenni það alveg hreinskilnislega, en einhvers staðar verðum við að byrja og ég held að fyrst þurfum við efnislega að fá í hendurnar eitthvað sem við getum vísað til og sagt: Þetta er nýtt fjármálakerfi, þetta er ekki gamla fjármálakerfið. Við erum búin að gerbreyta því. Þetta er mun heilbrigðara fjármálakerfi með heilbrigðara umhverfi, meira eftirliti, meiri ábyrgð og almennt skýrara regluverki og öðru hugarfari. Þegar við getum komið þeim skilaboðum á framfæri held ég að traustið muni smám saman vakna en við þurfum líka að vera alveg (Forseti hringir.) raunsæ með að það mun taka mörg ár.