dagskrá fundarins.
Virðulegi forseti. Við erum hér með dagskrá og þegar óundirbúinn fyrirspurnatími er búinn munum við ræða handtöku og afhendingu manna milli Norðurlanda vegna refsiverðra verknaða. Við erum að fá fréttir af því að í vikunni verði ekki rædd efnahagsmál. Þau verða ekki rædd vegna þess að þeir sem um þau mál véla í ríkisstjórninni hafa eitthvað annað og betra að gera.
Við í hv. viðskiptanefnd erum búin að fara yfir stöðuna hjá heimilunum núna í mánuðinum og það er óhætt að halda því fram að þar er slóðahátturinn slíkur að hæstv. félagsmálaráðherra hefur meira að segja látið það eiga sig þangað til bara núna á síðustu dögum að skipa nauðsynlegar nefndir til að taka á þeim málum.
Virðulegi forseti. Ég vil fá að heyra það úr þessum stól að menn ætli ekki að ræða efnahagsmál í vikunni, að menn telji annað (Forseti hringir.) mikilvægara.