138. löggjafarþing — 71. fundur,  1. feb. 2010.

dagskrá fundarins.

[15:12]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Ég kem til að ræða fundarstjórn forseta og dagskrá þingsins í dag. Fyrir mig sem er á mínu fyrsta þingi er merkilegt að rifja það upp að fyrir sléttu ári þegar þingið kom saman eftir hlé var mikið fjaðrafok yfir þeim málum sem þá voru sett á dagskrá. Ég held að hægt væri að íhuga það að hægt væri að setja álíka fjaðrafok á dagskrá í fjölmiðlum í dag vegna þeirra mála sem hér er talið brýnast að leita úrlausnar á.

Mig langar aðeins að nefna þessa náttúruverndaráætlun. Ég tek undir það sem hér hefur komið fram, það ætti að taka hana af dagskrá og senda hana ríkisstjórninni aftur til skoðunar. Það kom fram í sumar þegar hún var lögð fram að þá var hún endurflutt frá fyrri þingum og öllum breytingum, andsvörum og umsögnum sem höfðu verið komnar inn var hent út vegna þess að það væru svo margir nýir þingmenn sem þyrftu að fjalla um þetta frá grunni. (Forseti hringir.) Það hefur ekki verið gert. Málið er síðan komið á dagskrá sem eitt það brýnasta eftir að þing kemur úr fríi og það er talið mikilvægasta (Forseti hringir.) málið. Ég legg til, forseti, að þessu máli verði vísað frá í dag.