138. löggjafarþing — 71. fundur,  1. feb. 2010.

dagskrá fundarins.

[15:16]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmönnum Samfylkingarinnar fyrir hreinskilnina. Það kom hér alveg hreint fram hver hugur þeirra er til þeirrar stöðu sem er uppi á Íslandi í dag. Hér er útskýrt fyrir okkur að öll mál séu jafngild og þess vegna ætli menn að ræða í dag um árlegan vestnorrænan dag, vestnorræn nemendaskipti milli menntastofnana á framhaldsskólastigi. Þessi efnahagsmál, virðulegi forseti, hér er óundirbúinn fyrirspurnatíma þannig að menn fá 2–4 mínútur til að spyrja hæstv. efnahagsráðherra og hafið þið það og verið síðan ekki að trufla hæstv. ríkisstjórn með þessu „heimilin og fyrirtækin“. Það var augljóslega bara eitthvað sem var talað um rétt fyrir kosningar.

Virðulegi forseti. Hér er þetta kristaltært. Ég hvet aðila til að lesa dagskrá fundarins í dag. Hver og einn má svo meta (Forseti hringir.) hvort ekki væri nær að ræða önnur og brýnni mál á þessari stundu hjá íslenskri þjóð.