138. löggjafarþing — 71. fundur,  1. feb. 2010.

dagskrá fundarins.

[15:25]
Horfa

Björn Valur Gíslason (Vg):

Virðulegi forseti. Við fögnum því ekki aðeins í dag að ár er liðið frá því að ríkisstjórn var mynduð hér í landinu heldur ekki síður að þá flæmdist frá völdum eftir 18 ára setu í Stjórnarráðinu Sjálfstæðisflokkurinn og þeir sem þar sátu og stjórnuðu landinu í það hrun sem við erum í í dag. Það var ekki verið að ræða um efnahagsmál þá dagana á Alþingi. Hvernig var dagskráin 20. janúar 2009 í þessum sal þegar allt var að hrynja í kringum okkur, þegar þáverandi ríkisstjórn var gjörsamlega búin að missa tökin á efnahagsmálum í landinu og réð ekki nokkurn skapaðan hlut við nokkurn hlut?

Það var verið að ræða um greiðslur til líffæragjafa, sölu áfengis og tóbaks, olíugjald, andstöðu við eldflaugavarnarkerfið, tóbaksvarnir, Skipafriðunarsjóð — þetta var dagskráin þá, í miðju hruninu, nokkrum dögum áður en fólkið í landinu flæmdi þessa ríkisstjórn út úr Stjórnarráðinu með pottum og pönnum.