störf þingsins.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessa spurningu. Það er rétt að árið 2005 lagði ég 300.000 kr. í stofnfé inn í einkahlutafélagið Fljótshlíðinga ehf. en tilgangur félagsins var að festa kaup á gamla skólahúsinu í Fljótshlíð með það fyrir augum að koma þar á fót einhvers konar starfsemi sem mundi styrkja samfélagið. Í þessu verkefni tóku þátt ýmsir landeigendur í Fljótshlíð. Ég veit í sjálfu sér ekki nákvæmlega hverjir þeir eru sem eru með í þessu en það eru tæplega 30 manns að því er mér skilst.
Nú eru reglur um hagsmunaskráningu okkar þingmanna á þann veg að mönnum ber ekki skylda til að skrá hluti þar sem verðmæti nema að markaðsvirði minna en 1 millj. kr. Mér bar því í sjálfu sér ekki skylda til að skrá þessi fjárhagslegu tengsl en engu að síður gerði ég það eftir að vakin hafði verið athygli á þessu. Ástæðan fyrir því að mér kom þetta ekki í hug þegar ég var að skrá hagsmunatengsl mín inn á síðuna var sú að þessu svipar meira til átthagafélags en að þarna sé um viðskiptafélag og viðskiptatengsl að ræða milli manna. Ég er úr Rangárvallasýslu. Þar býr mikið af góðu fólki. Sumir eiga viðskiptatengsl mikil, aðrir ekki. Engu að síður tel ég að þetta komi því ekki við hvernig ég komi til með að haga störfum mínum í nefndinni.
Það er hins vegar umhugsunarefni hvernig fjallað er um tengsl okkar þingmanna og hvað hafi áhrif á skoðanir okkar og skoðanamyndun. Mér hefur t.d. borist til eyrna að hv. þm. Róbert Marshall spili stundum á gítar og taki að sér veislustjórn á hinum og þessum þorrablótum og skemmtunum hér um byggðir. Þá er kannski rétt að koma því á framfæri að ég hef heyrt athugasemdir um það hvort tengsl sem þessi beri að skrá og hvort þarna komi greiðslur fyrir. Það væri því ágætt ef hv. þingmaður gæti við annað tilefni upplýst þetta. Ég hef áhyggjur af því að menn séu að fetta fingur út í þetta. Ég hef reyndar engar athugasemdir við þetta en engu að síður er alveg ljóst að umræðan sem er að skapast um störf okkar er farin út á þessar brautir og því rétt að allt sé uppi á borðum.