fyrirkomulag umræðna um störf þingsins.
Virðulegi forseti. Hæstv. fjármálaráðherra á auðvitað að vera kunnugt um það hvernig þessi liður sem við vorum að ræða um varð til. Hugsunin var sú að hér gætu þingmenn skipst á skoðunum og menn gætu kallað eftir viðhorfum hver annars í þeim efnum. Auðvitað er það þannig að þingmenn geta neitað að taka þátt í þeirri umræðu. Það er ekki bara svo að það séu stjórnarandstæðingar sem eru að taka upp fulltrúa stjórnarinnar. Mörg tilvik hafa líka verið þannig að stjórnarþingmenn hafa kallað eftir viðhorfum stjórnarandstæðinga og það er bara mjög eðlilegt.
Við höfum síðan annan lið, óundirbúnar fyrirspurnir, þar sem ráðherrarnir verða fyrir svörum og ég trúi því ekki að hæstv. ráðherra sé að sýna þann hroka að það eigi eingöngu að vera þannig að þingmenn eigi að spyrja hæstv. ráðherra en eigi ekki að hafa tækifæri til að skiptast á skoðunum.
Það var enginn að fara neinar krókaleiðir að einu eða neinu hér. Menn voru einfaldlega að kalla eftir tilteknum viðhorfum að gefnu tilefni. Sá eini sem var með krókaleiðir í þessum efnum, og var að vega úr launsátri, var hæstv. fjármálaráðherra sem beindi orðum sínum til hæstv. forsætisráðherra þegar hann talaði um að menn ættu ekki að vera að sproksetja samninganefndina og ég tek undir með honum í þeim efnum.