138. löggjafarþing — 73. fundur,  3. feb. 2010.

raforka til garðyrkjubænda.

148. mál
[15:35]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Jón Bjarnason) (Vg):

Herra forseti. Ég vil þakka þessa umræðu og þær eindregnu áherslur hjá öllum sem hér hafa tekið til máls um að standa að baki garðyrkjunni og leita allra leiða til að örva vöxt hennar og þá líka halda framleiðslukostnaði niðri.

Ég minntist á það áðan að ég hef skipað starfshóp, átakshóp, sem er að skilgreina leiðir og möguleika á að ná þessum markmiðum, um að auka framleiðsluna og auka hagkvæmni hennar, og sá hópur starfar af fullum krafti. Hitt er alveg hárrétt að það sem lýtur að töxtum raforkunnar beint heyrir framkvæmdarlega undir iðnaðarráðherra en raforkulögin eru til endurskoðunar og vil ég minna hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins, sem voru að tala um hvernig nálgast ætti jöfnun í raforkukostnaði, á að það var einmitt setning þessara raforkulaga á sínum tíma og yfirtaka á Evróputilskipunum hvað varðaði markaðsvæðingu raforkukerfisins sem gerði það að verkum að krafist var aukinnar arðsemi út úr kerfinu og ekki var hægt að beita þeim eðlilegu félagslegu aðgerðum til jöfnunar sem passa best við íslenskt samfélag. Það tel ég að eigi að gera við endurskoðun á raforkulögunum að vita hvernig við gætum fært jöfnuðinn inn í kerfið sjálft.

Ég tek síðan undir það og árétta hina miklu möguleika íslenskrar garðyrkju. Okkur ber skylda til að leita allra leiða til að styrkja og efla þá atvinnugrein.