138. löggjafarþing — 73. fundur,  3. feb. 2010.

togararall.

182. mál
[15:56]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Jón Bjarnason) (Vg):

Frú forseti. Ég þakka spurningar hv. þingmanns um togararallið. Eins og hv. þingmaður rakti var það gríðarlega mikilvægt að því var komið á á sínum tíma og hefur gefið miklar upplýsingar í sambandi við mat á stöðu einstakra fiskstofna og veiðiráðgjöf. Hitt er svo annað mál hvort þar megi gera betur. Hv. þingmaður spyr um niðurstöðu faghóps sem var skipaður á haustdögum 2007 og vann við endurskoðun á svokölluðu togararalli. Skýrsla þessa faghóps ásamt tillögum hefur nýlega verið lögð fyrir ráðuneytið og er að finna á heimasíðu þess. Eins og skýrslan ber með sér tók faghópurinn flesta þætti helstu stofnmælinga leiðangra stofnunarinnar til skoðunar með sérstakri áherslu á stofnmælingu botnfiska í mars og stofnmælingu botnfiska að hausti, svokallað togararall á vorin en haustrall að haustinu.

Síðan er spurt: Hvaða breytingar hafa verið gerðar á fyrirkomulagi togararallsins í framhaldi af þessari endurskoðun og með hliðsjón af sérstökum fjárveitingum til að auka gæði þessara rannsókna? Þá voru, eins og hv. þingmaður minntist á, 50 millj. kr. á ári í þrjú ár veittar til að standa straum af kostnaði þessa verkefnis. Tengist það þar á meðal umfangsmikilli úttekt á framkvæmd stofnmælingarinnar frá upphafi vega árið 1985 og mikilli gagnagreiningu og úrvinnslu. Í því samhengi skal nefnt að heildarkostnaður við framkvæmd stofnmælinga á vori og hausti nemur á árinu 2009 um 335 millj. kr. Auknir fjármunir voru settir í viðhald og eftirlit með veiðarfærum með samningi við Fjarðanet á Ísafirði. Mestur kostnaður fór þó til ýmissa tilrauna og viðbótarstöðva til að kanna mögulegar betrumbætur á framkvæmd rallsins.

Þær tilraunir og verkefni sem ráðist var í árið 2008/2009 voru þessar helstar: Í vorralli 2008 voru tilraunir með skipstjóravaldar stöðvar, þ.e. færanlegar í útköntum á Halamiðum og fyrir norðaustan land; vorrall 2008, aukastöðvar á grunnslóð í Faxaflóa, í Breiðafirði og við Vestfirði; haustrall 2008, aukastöðvar á grunnslóð á svæðinu frá Breiðafirði norður um að Austfjörðum; haustrall 2008, aukastöðvar á Dohrn-banka í grænlenskri lögsögu vegna upplýsinga um vaxandi þorskgengd; vorrall 2009, áframhaldandi tilraunir með skipstjóravaldar stöðvar fyrir norðvestan og norðaustan land; vorrall 2009, stöðvarnetið þétt á grunnslóð fyrir vestan og norðan; vorrall 2009, einnig samanburður gerður á Árna Friðrikssyni og togaranum Bjarti fyrir norðaustan land til að bregðast við hugsanlegum breytingum á skipakosti og haustrall 2009, aukastöðvar á grunnslóð líkt og árið 2008; vorrall og haustrall árið 2008/2009, myndataka á haustrallsvörpu í Ísafjarðardjúpi og 2008 var Bjarni Sæmundsson notaður til að ljúka vorralli 2008 á Vestfjörðum sem hafði dregist þar vegna erfiðs tíðarfars og Árni Friðriksson árið 2009. Nú þegar hefur verið tekið mið af tillögum faghópsins með ítarlegum samanburðartilraunum en einnig með fjölgun stöðva á grunnslóð og á Dohrn-banka. Fyrirhugað er að taka mið af þessum niðurstöðum skýrslunnar varðandi framkvæmd stofnmælingaleiðangra í framtíðinni.

Við þekkjum þá umræðu og vitum af því að margir hafa talað um að síðustu 3–4 ár hafi líka orðið vart við auknar göngur þorsks frá Austur-Grænlandsmiðum yfir á Íslandsmið snemma að vetri eða að hrygningarslóð og aftur til baka að vori. Ástæða er til að þessar göngur þorsks verði einnig kannaðar betur en gert hefur verið hingað til sé þess nokkur kostur þar sem þorskur við Austur-Grænland er talinn vaxandi og ástæða til að huga vel að þeim breytingum sem þar hafa orðið á undanförnum árum samfara hlýnun sjávar hér við land.

Frú forseti. Vafalaust er ýmislegt sem betur má gera en ég tel að bæði með þessum starfshópi og í þeim aðgerðum sem nú er verið að horfa til, um enn aukið samstarf á milli skipstjórnarmanna og fiskifræðinga, verði þetta allt í endurskoðun. Við sjáum líka að breytingar á hitastigi sjávar og öðrum þeim þáttum sem hafa áhrif á lífríkið hljóta að kalla á það að allar aðferðir okkar við að meta aðstæður séu stöðugt til endurskoðunar.