138. löggjafarþing — 74. fundur,  4. feb. 2010.

tilkynning um dagskrá.

[10:30]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Um klukkan 11 í dag, að loknum óundirbúnum fyrirspurnatíma, fer fram umræða utan dagskrár um stöðu fjármála heimilanna. Málshefjandi er hv. þm. Unnur Brá Konráðsdóttir, og hæstv. félagsmálaráðherra, Árni Páll Árnason, verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.