för forsætisráðherra til Brussel.
Frú forseti. Mér er nokkur vandi á höndum. Það er varla boðlegt að svara málflutningi af því tagi sem hv. þingmaður hafði uppi. Ef ummæli hennar um hæstv. forsætisráðherra eru tekin alvarlega duga tæpast um þau nokkur orð.
Það hefur alllengi staðið til að forsætisráðherra hitti framkvæmdastjóra Evrópusambandsins og síðan opnaðist tækifæri fyrir það að sá fundur gæti farið fram. Það bar tiltölulega brátt að og forsætisráðherra fór til þess fundar og er væntanlega á honum núna. Þetta er venjulegur fundur forsætisráðherra með þessum aðila, hefur staðið lengi til og tengist að sjálfsögðu máli Íslands og því sem á dagskrá er í okkar samskiptum við Evrópusambandið í förinni. Þar fyrir utan eru slíkir fundir nokkuð reglubundnir, eins og kunnugt er, og forverar hæstv. núverandi forsætisráðherra hafa örugglega flestir, ef ekki allir, átt slíka fundi einhvern tíma á sínum starfsferli.
Varðandi þá ákvörðun sem fram undan er og tengist aðildarumsókn Íslands ber það að sjálfsögðu örugglega á góma á þessum fundi. Það er líka rétt að það hefur komið til tals og Evrópusambandið hefur sjálft haft það til skoðunar að Ísland fái aðild að lánveitingum og sérstöku prógrammi sem þar er og tengist ríkjum sem eru annaðhvort aðildarríki eða EES-ríki eða umsóknarríki eða hvað það nú er. Það mál er í sínum sjálfstæða farvegi.
Ég verð svo að segja alveg eins og er og endurtaka að mér fundust ummæli hv. þingmanns svo óviðeigandi að ég held að ég kjósi að tjá mig ekki um þau. Fréttaflutningur af þessari ferð hæstv. forsætisráðherra er reyndar stórfurðulegur. Ríkissjónvarpið er ákaflega upptekið af því að gera úr því stórmál sem ekkert er. (Forseti hringir.) Þetta er venjubundinn og eðlilegur fundur og það er á vegum Evrópusambandsins að undirbúa hann og kynna eins og venjan er.