138. löggjafarþing — 75. fundur,  16. feb. 2010.

tilkynning um dagskrá.

[13:31]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Um klukkan 2 í dag, að loknum óundirbúnum fyrirspurnatíma og atkvæðagreiðslum, fer fram umræða utan dagskrár um stöðu efnahagsmála. Málshefjandi er hv. þm. Bjarni Benediktsson. Forsætisráðherra Jóhanna Sigurðardóttir verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 3. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í rúma klukkustund.