138. löggjafarþing — 75. fundur,  16. feb. 2010.

tilkynning um mannabreytingu í nefnd.

[13:32]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseta hefur borist eftirfarandi tilkynning frá varaformanni þingflokks Samfylkingarinnar um mannabreytingar í nefnd þingsins, samanber 16. gr. þingskapa.

Ólína Þorvarðardóttir tekur sæti í samgöngunefnd í stað Oddnýjar Harðardóttur. Þessi breyting skoðast samþykkt án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.