endurkoma fyrri stjórnenda í viðskiptalífið.
Virðulegi forseti. Einkabankar eru með fyrirtæki útrásarvíkinga í skuldameðferð og bankarnir vilja hafa endurheimtur sem mestar og það er þeirra mat að það sé tryggt með því að fyrrum stjórnendur með nýtt fjármagn sé heimilað að eignast fyrirtækin.
Eins og rakið er í góðri grein hv. þm. Eyglóar Harðardóttur í dagblaði í dag, þar sem annars er velt upp mörgum áhugaverðum hugmyndum, hefur viðskiptanefnd ítrekað fundað með fulltrúum bankanna um samræmdar verklagsreglur og vonandi sjáum við afrakstur þeirrar vinnu á næstunni. Það verður hreint og beint að viðurkennast að erfitt er að horfa upp á fyrrum aðalleikendur útrásarinnar verða ráðandi í nýju íslensku viðskiptalífi. Það hlýtur því að vera metnaður okkar allra sem hér erum að skýrar og afdráttarlausar verkreglur verði mótaðar sem bregðast við hruni og siðrofi með ákveðnum hætti og gefa fyrirheit um ný vinnubrögð. Það er alltaf erfitt að draga skýra línu því grunaðir menn geta reynst saklausir og þeir sem við teljum saklausa í dag geta verið ákærðir á morgun. Það er því að mínu mati mikilvægt að við tryggjum að lög og reglur kveði skýrt á um að hafi viðkomandi brotið lög verði hægt að ganga að öllum hans eignum og þar með talið eignarhlutum í fyrirtækjum. Með slíku mundum við vonandi tryggja að þeir sem gerðust brotlegir verði ekki hluti af nýju siðbættu viðskiptalífi.
Eins er mikilvægt að gagnsæi í vinnubrögðum ríki í skuldameðferð stærri fyrirtækja. Opið söluferli stærstu fyrirtækjanna hlýtur því að vera forgangskrafa. Að mínu mati liggur verkefnið í þrennu: Skýrum verklagsreglum, skýrum lagaheimildum til að ganga að eignum þeirra sem brotið hafa lög og að söluferli allra stærstu fyrirtækjanna verði opið.
Mér leikur forvitni á að vita hvert er mat ráðherra á núverandi stöðu mála og hvernig hann hyggst bregðast við þeim spurningum sem leita á landsmenn um þessar mundir. Hversu langt vill hann ganga í að byggja upp traust á viðskiptalífi landsmanna en þær spurningar kristallast í því flókna úrlausnarefni hvernig beri að taka á skuldameðferð stórra fyrirtækja fyrrum útrásarvíkinga.