138. löggjafarþing — 75. fundur,  16. feb. 2010.

veiðieftirlitsgjald.

371. mál
[19:37]
Horfa

Einar K. Guðfinnsson (S):

Virðulegi forseti. Það er eiginlega svolítið einkennilegt að verða vitni að því hjá sjálfum sér hvernig örlögin gripu nánast í taumana. Ég hélt satt að segja þegar ég tók til máls áðan um þetta frumvarp með þessu sakleysislega yfirbragði að við værum að fara í tveggja, þriggja mínútna umræðu sem yrði skýrð mjög fljótlega af hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og það vantaði ekki að hæstv. ráðherra skýrði málin en um leið varpaði hann nýju ljósi á allt það mál sem við höfum verið að ræða í dag. Ég hafði satt að segja ekki áttað mig á því þegar ég fór í þessa umræðu að við værum að ræða skattalagafrumvarp sem hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra væri að flytja. Ég hafði bara ekki gert mér grein fyrir því að skattmann sjálfur hefði tekið sér bólfestu í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu og væri núna farinn að etja kappi við hæstv. fjármálaráðherra um sæmdarheitið „skattmann“. En það er auðvitað þannig þegar maður skoðar þetta mál í samhengi við það sem við vorum að gera í dag að allt í einu er komin upp alveg glæný mynd. Það er ekki þannig að hér sé verið að leggja á gjöld, þjónustugjöld á borð við veiðileyfagjaldið eða gjald til Siglingastofnunar eða eitthvað þess háttar, við erum að ræða frumvarp til laga um skattamál þar sem flutningsmaður er hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Hér er verið að setja á nýjan skatt og ég tek undir með hv. þm. Illuga Gunnarssyni að maður getur ímyndað sér marga staði verri til að þiggja þessar tekjur en hafnir landsins, þær þurfa sannarlega á auknum tekjum að halda, en þetta er hins vegar alveg ný hlið sem menn höfðu ekki gert sér grein fyrir og ekki hefur farið fram nein umræða um.

Setjum þetta nú í samhengi við annað. Við lukum í dag afgreiðslu á máli úr 2. umr. um hið svokallaða skötuselsmál og þar er gert ráð fyrir nýrri skattheimtu líka. Þar á ríkisvaldið að fara í kapp um það að fá tekjur af skötuselnum og gert er ráð fyrir því að þær tekjur geti verið allt að 240 millj. kr. Að vísu var ætlunin að ráðstafa þeim að hluta til til byggðanna í landinu í gegnum byggðaáætlun en einhverra hluta vegna tóku þeir í taumana sem vildu ekki að þessir peningar rynnu þangað, heldur færu til annars sjóðs í vörslu hæstv. iðnaðarráðherra, hlutdeild úr 240 millj. kr.

Í annan stað flutti meiri hluti sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar tilllögu um breytingu á frumvarpinu sem felur það í sér að selja skuli 200 tonn af óslægðum botnfiski á fiskveiðiárunum 2009/2010 og 2010/2011. Lauslega áætlað gæti ég ímyndað mér að tekjur af þessu gætu verið í kringum 50 millj. kr. Það eru kannski dálítil skekkjumörk í þessu en ég hygg að þetta sé ekki víðs fjarri þeirri tölu sem gætu verið tekjur af þessu miðað við þær upplýsingar sem ég sá á vef Fiskistofu. Þar er að vísu gert ráð fyrir slægðum fiski, hér er talað um óslægðan fisk og því er auðvitað um að ræða aðeins minna magn, en ég var ekki í hæstu hæðum miðað við það verðmæti sem er núna á kvótaverðinu og gert er ráð fyrir því raunar að taka tillit til þess kvótaverðs sem er uppi hverju sinni.

Það er því augljóst mál þegar við skoðum þetta í samhengi að hér er um að ræða allverulega aukna skattheimtu. Við erum að tala um 240 milljónir vegna skötusels, við erum að tala um kannski 50 milljónir vegna frístundaveiðibátanna sem eiga að borga sérstaklega fyrir þessi 200 tonn, og nú þennan sérstaka strandveiðiskatt. Með öðrum orðum, við erum að tala um nýja skattheimtu sem verið er að festa í lög ef þetta frumvarp nær fram að ganga. Vilji meiri hluta Alþingis hefur þegar komið fram varðandi skötuselinn og frístundabátana, þar er enginn bilbugur á mönnum, en hér er sem sagt verið að leggja til 30 millj. kr. viðbótarskattheimtu. Við erum að ræða um það á þessu síðdegi að leggja drög að nýrri skattheimtu upp á 320–350 millj. kr. til viðbótar tíföldun þeirri sem orðið hefur á veiðigjaldinu, auðlindagjaldinu til sjávarútvegsins sem var ákveðið í fjárlögunum um áramótin.

Mjög mikilvægt er að menn átti sig á þessu. Við erum greinilega að sigla inn í nýtt umhverfi sem hæstv. ríkisstjórn er að boða, umhverfi stóraukinnar gjaldtöku og skattheimtu af sjávarútveginum sem hefði getað runnið í gegn hægt og hljótt ef menn hefðu ekki áttað sig á hvað hér er á seyði.