störf viðræðunefndar um einkaframkvæmdir.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir skýr og greinargóð svör og sömuleiðis þá umræðu sem hér hefur farið fram um þetta mál. Það fer auðvitað ekki á milli mála að við erum að ræða gríðarlega stór verkefni sem geta haft heilmikil áhrif á framvindu efnahagsmála. Eins og ég sagði áðan er mjög áríðandi fyrir okkur að skapa meiri eftirspurn í þjóðfélaginu og það verður ekki gert nema hlutirnir fari að hreyfast. Einn þáttur í því gæti einmitt verið að örva framkvæmdastigið eins og hugmyndin er að gera með þeim hugmyndum um einkaframkvæmd sem við höfum verið að ræða.
Þess vegna get ég ekki annað en harmað að enn þá skuli ekki vera búið að taka neinar ákvarðanir um hvaða verkefni verði fyrst boðin út. Ég út af fyrir sig fagna því að hæstv. ráðherra telji að það verði samgöngumiðstöð og síðan Landspítali en það gefur til kynna að ákvarðana um þessi mál sé að vænta fljótlega, hvaða skoðun sem menn hafa að öðru leyti á þessum verkefnum. Það skiptir hins vegar ekki öllu máli í þessu sambandi. Aðalatriðið er að við sjáum einhverja niðurstöðu, ákvarðanir sem leiða til þess að framkvæmdir geti farið af stað. Tíminn líður. Ég vek athygli á því að þessi nefnd hóf störf um miðjan júní á síðastliðnu ári. Núna er komið undir lok febrúarmánaðar og tíminn vinnur ekki með okkur í þessum efnum. Til þess að geta farið af stað með útboð vitum við að útboðstíminn er líka býsna langur.
Ég vil spyrja hæstv. ráðherra. Ég hef litið þannig á að til þess að einkaframkvæmdir í raun og veru uppfylli þær kröfur sem til einkaframkvæmda eru gerðar verði þær að fjármagna sig að fullu sjálfar, annaðhvort með afnotagjöldum eða öðrum hætti, til þess að þær séu utan ríkisreikningsins, utan fjárlaganna. Í öðru lagi vildi ég spyrja hæstv. ráðherra hvort þessar framkvæmdir sem hann nefndi að hefðu þegar verið boðnar út, Kollafjörður eða þ.e. framkvæmdin á Suðurlandsvegi, (Forseti hringir.) hvort það verkefni sé líka í formi einkaframkvæmdar eða hvort það verði greitt af vegáætlun og úr ríkissjóði.