138. löggjafarþing — 77. fundur,  18. feb. 2010.

atvinnustefna ríkisstjórnarinnar.

[10:40]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Það hefur komið fram í ræðustól og allir eiga að vita að ríkisstjórnin er fjölskipað vald og hver ráðherra fer með sinn málaflokk. Því er það okkur sem viljum vita hver atvinnustefna ríkisstjórnarinnar nauðsyn að spyrja hvern ráðherra um hana. Síðan verðum við að leggja saman og fá út meðaltal til að átta okkur á því hver stefnan er.

Hæstv. umhverfisráðherra hefur með umdeildum úrskurðum sínum í skipulagsmálum sveitarfélaga haft ótvíræð neikvæð áhrif á atvinnuuppbyggingu í orkugeiranum og mig langar að spyrja hæstv. umhverfisráðherra eins í framhaldi af skriflegu svari sem ég fékk frá ráðuneytinu vegna fyrirspurnar minnar fyrr í vetur um tímafresti og það hversu mörg skipulög bíða úrlausnar í ráðuneytinu. Í svarinu kemur fram að nokkur aðalskipulög voru afgreidd í ráðuneytinu í ágústmánuði og það hefði tekið 6–66 daga að afgreiða þau, enda ekki neinn virkjanakostur, orkuver, stóriðja eða neitt slíkt þar inni. Aftur á móti bíða sex eða sjö skipulög þarna inni, að viðbættum aðalskipulögum Flóa og Skeiða sem tóku u.þ.b. 11 mánuði og 14 mánuði að fá afgreiðslu, og þau hafa öll verið meira en 90 daga og upp í 195 daga í ráðuneytinu, enda tengjast þau Suðvesturlínu og veglínu yfir Þjórsá — þau tengjast öll atvinnuuppbyggingu á svæðinu.

Því langar mig að spyrja hæstv. umhverfisráðherra: Hver er atvinnustefna umhverfisráðherra í þessari ríkisstjórn? Er hæstv. umhverfisráðherra á móti öllum (Forseti hringir.) virkjunum og verkefnum sem tengjast uppbyggingu í orkugeiranum?