138. löggjafarþing — 77. fundur,  18. feb. 2010.

ráðgjafarstofa fyrirtækja í greiðsluörðugleikum.

73. mál
[12:02]
Horfa

Flm. (Eygló Harðardóttir) (F) (andsvar):

Frú forseti. Eins og kemur fram í greinargerðinni og ég nefndi líka í framsöguræðu minni held ég að það sé nauðsynlegt að ráðgjafarstofan sé einmitt tengd við þessa aðila eða stofnanir sem veita þegar þessa þjónustu. Það eru líka þeir aðilar sem fá einstaklingana inn til sín þegar þeir hefja rekstur. Maður sér hjá þessum vefsíðum og sambærilegum stofnunum erlendis að það skiptir svo miklu máli að við kennum ekki bara frumkvöðlum hvernig eigi að stofna einkahlutafélag eða hvar eigi að skrá sig fyrir virðisaukaskattsnúmeri heldur að við kennum þeim strax í upphafi rekstrar hvað þurfi að varast. Þar sem ég hef starfað í þessum geira, við ráðgjöf um hvernig eigi að hefja rekstur, þekki ég að ýmsir virðast fyrst og fremst fylgjast með flæði peninga inn á reikningana hjá sér, hvort þeir eigi nóg af peningum í augnablikinu til að dekka útgjöldin núna en eru ekki með neina yfirsýn yfir það t.d. hvernig staðan er á heimtum viðskiptakrafna.

Mér fannst mjög athyglisvert þegar ég skoðaði þær upplýsingar sem er verið að koma á framfæri erlendis að mönnum er bent á viðvörunarmerkin. Rekstraraðilar eru með kerfi í rekstrinum sem gefur þeim merki. Ef viðskiptamaður fer á hausinn eða er allt í einu farinn að borga tveimur mánuðum seinna en hann gerði áður eiga að fara af stað viðvörunarmerki í rekstrinum og maður á að bregðast við. Hlutum eins og að setja reglur um hvernig menn gefa út innheimtureikninga þarf að koma á framfæri við þá sem eru að hefja (Forseti hringir.) rekstur í upphafi. Það eigum við að gera í gegnum það stuðningskerfi sem við höfum núna. Þess vegna nefndi ég Byggðastofnun og þess vegna nefndi ég Nýsköpunarmiðstöðina. (Forseti hringir.)