138. löggjafarþing — 79. fundur,  23. feb. 2010.

samskipti íslenskra stjórnvalda og erindreka við fulltrúa bandarískra stjórnvalda.

[14:17]
Horfa

Ögmundur Jónasson (Vg):

Hæstv. forseti. Ég þekki ekki Sam Watson, sendiráðsritara í bandaríska sendiráðinu á Íslandi. Hann er eflaust ágætur og mætur maður en ég efast um að hann eigi eftir að fá Nóbelsverðlaun í sagnfræði. Þetta er skrásetjari fundarins sem menn leggja nú allt sitt traust á, skrásetjari fundar með sendimönnum Íslands, starfsmönnum utanríkisráðuneytisins og sendiherra Íslands í Bandaríkjunum. Þeir vefengja vitnisburð hans og ég ætla, hæstv. forseti, að láta starfsmenn íslenska utanríkisráðuneytisins og sendiherrann njóta vafans. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir að taka upp hanskann fyrir þá.

Það skiptir miklu máli hvernig Íslendingar haga samskiptum sínum við erlend ríki og þar skiptir mestu máli að markmið okkar séu skýr. Frá hruninu haustið 2008 og fram á þennan dag hafa þau ekki verið nægilega skýr. Þau voru það ekki í upphafi. Þau eru að skýrast nú og sem betur fer erum við að þjappa okkur saman. Það sem við erum að reyna að gera núna í sameiningu er að losa um það kverkatak sem erlendar þjóðir hafa sett um háls okkar, þjóðarhálsinn, með aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og þeirra ríkja sem ráða lögum og lofum innan stjórnar hans. (Gripið fram í.)

Nú eru ríkisstjórnin, sendimenn okkar erlendis og starfsmenn í utanríkisráðuneytinu farin að tala þessu máli (Forseti hringir.) og ég fagna því. Það sem þeir gerðu gagnvart sendiráðsfulltrúa Íslands hér á landi var að krefjast þess að látið yrði af (Forseti hringir.) þeim óeðlilega þrýstingi sem Ísland er beitt hvort sem er á vettvangi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eða annars staðar. Fyrir þetta ber að þakka.