samskipti íslenskra stjórnvalda og erindreka við fulltrúa bandarískra stjórnvalda.
Virðulegi forseti. Ég skil vel ræðu hv. þm. Þórunnar Sveinbjarnardóttur enda hlýtur hún að vera mjög svekkt yfir því að það sem formaður Framsóknarflokksins og aðrir framsóknarmenn hafa haldið fram í þessum þingsal um þetta mál hefur allt komið á daginn. Það er eðlilegt að Icesave-flokkarnir sem eru í ríkisstjórn skuli vera svekktir yfir þessu.
Ég tek undir með þeim sem hafa fagnað því framtaki að reyna að fá stuðning gagnvart Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Því ber að sjálfsögðu að fagna en því ber ekki að fagna þegar starfsmenn utanríkisþjónustunnar fara utan og bera sama bullið á borð fyrir þá sem þeir hitta og ríkisstjórnin heldur að íslensku þjóðinni. Það er vitanlega algjörlega óásættanlegt. Ég geri ráð fyrir því að hæstv. utanríkisráðherra muni leita staðfestingar á því hvort þetta minnisblað sé rétt. Ef það er ekki rétt hlýtur hann að óska eftir upplýsingum um hvað fór fram á þessum fundi og reyna að koma því þá á framfæri við þingheim. Ef þetta er röng lýsing köllum við að sjálfsögðu eftir því sem satt og rétt er og var sagt á þessum fundi.
Það sem upp úr stendur er hræðsluáróður ríkisstjórnarinnar sem byrjaði og sem var vitnað til og staðfest hér af ráðherranum í bréfi til forsetans þegar forsetinn var að velta fyrir sér hvort hann ætti að skrifa undir þessi ólukkanslög sem voru samþykkt á þinginu fyrir áramótin. Svo er hitt, það virðist vera einlægur vilji ríkisstjórnarinnar og ríkisstjórnarflokkanna, og ráðherranna sérstaklega, að koma í veg fyrir að þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram. Það er það sem stendur upp úr í þessu minnisblaði og orðum hæstv. ráðherra í fréttum í dag að menn gera allt sem þeir geta til þess að þjóðin fái ekki að greiða atkvæði um þennan samning.
Er þetta lýðræðið? Er þetta þessi lýðræðisvilji sem skín af mönnum (Forseti hringir.) í stjórnarflokkunum þegar þeir koma í þessa pontu, að reyna að koma í veg fyrir að þjóðin fái að segja sitt? (Gripið fram í.)