almenn hegningarlög.
Frú forseti. Ég mæli hér með fyrir frumvarpi til laga um breyting á almennum hegningarlögum. Meðflytjendur mínir eru hv. þm. Þuríður Backman, Lilja Mósesdóttir og Eygló Harðardóttir.
Með frumvarpinu er lögð til sú breyting að 1. mgr. 194. gr. laganna orðist svo, með leyfi frú forseta:
„Hver sem gerist sekur um nauðgun skal sæta fangelsi ekki skemur en 2 ár og allt að 16 árum.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.“
Í XXII. kafla almennra hegningarlaga er fjallað um kynferðisbrot og er 1. mgr. 194. gr. þeirra laga svohljóðandi, með leyfi frú forseta:
„Hver sem hefur samræði eða önnur kynferðismök við mann með því að beita ofbeldi, hótunum eða annars konar ólögmætri nauðung gerist sekur um nauðgun og skal sæta fangelsi ekki skemur en 1 ár og allt að 16 árum.“
Eins og sjá má af gildandi ákvæði er mikil áhersla lögð á verknaðaraðferð, líkamlegt ofbeldi, líkamlega áverka og hótanir. Sú áhersla í greininni hefur endurspeglast í rannsóknum nauðgunarmála þar sem andlegum áverkum hefur allt verið gefinn of lítill gaumur að mínu mati. Aukin þekking á afleiðingum nauðgana hefur hins vegar fært okkur vitneskju um að andlegir áverkar eru alvarlegustu afleiðingar nauðgana. Það er því nauðsynlegt að lögin endurspegli þekkinguna á málum er snerta kynbundið ofbeldi. Í frumvarpinu er lögð til sú breyting á 1. mgr. 194. gr. að áherslan á verknaðaraðferðina verði felld úr textanum enda ljóst að orðalag greinarinnar samrýmist ekki þeirri hugsun sem býr að baki mannréttindaákvæðum okkar og mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og er frumvarpið byggt á þeirri meginhugsun að við uppfyllum kröfur sem mannréttindaákvæðið um friðhelgi einkalífs setur okkur á herðar.
Friðhelgi einkalífs er safnheiti ýmissa mannréttinda sem varin eru af stjórnarskrá og mannréttindasáttmála Evrópu. Þessi friðhelgi nær yfir heimili, fjölskyldu og persónulega hagi manns, og umfram allt það að hver maður hefur rétt til lífs og rétt til að ráða yfir eigin líkama og sálarlífi sem eru mikilvægustu þættir einkalífsréttinda. Rétturinn til lífs þarf einnig að samræmast sjálfsvirðingu manna, rétti til frelsis, mannhelgi og að þurfa ekki að þola ólögmætar þvinganir.
Þrátt fyrir að þau mannréttindi sem ég vísa til og önnur mannréttindi í mannréttindasáttmála Evrópu séu að meginstefnu til réttindi sem vernda einstaklinginn fyrir óþarfaafskiptum og þvingunum af hálfu ríkisins er þess jafnframt krafist af ríkinu að það tryggi að mannréttindi verði virk í reynd. Í dæmaskyni í þessa veru get ég nefnt að í máli gegn Hollandi fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu var deiluefnið að ekki var hægt að ákæra mann fyrir kynferðislega misnotkun á andlega fatlaðri stúlku þar sem hollensk refsilög höfðu engin slík ákvæði. Hollenska ríkið var þar með talið hafa brotið gegn mannréttindasáttmála, og athafna ríkisins var talin þörf. Í öðru lagi vil ég nefna dóm Mannréttindadómstóls Evrópu þar sem búlgarska ríkið var ekki talið hafa staðið með fullnægjandi hætti að lögreglurannsókn og meðferð nauðgunarmáls og þar með ekki uppfyllt skyldur sínar samkvæmt sáttmálanum um að gera mannréttindin virk í raun.
Að mínu mati er staðan á Íslandi áþekk og var málsefni í máli þar sem búlgarska ríkið átti í hlut. Að mínu mati er athafna ríkisins þörf í málum er snerta kynferðislegt ofbeldi og þótt fyrr hefði verið.
Ég ætla næst að víkja að kynfrelsi og skilgreiningu kynfrelsis. Kynfrelsi felst í réttinum til frelsis, mannhelgi og réttinum til að ráða yfir eigin líkama. Í bók sinni „Unwanted Sex: The Culture of Intimidation and the Failure of Law“ leggur Stephen Schulhofer, lagaprófessor við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum, áherslu á að refsiákvæði um nauðganir ættu að snúast um hugmyndina um kynfrelsi einstaklingsins. Schulhofer skilgreinir kynfrelsi sem kynferðislegan sjálfsákvörðunarrétt, þ.e. „réttinn til að velja og hafna kynferðislegu samneyti, hvar sem er, með hverjum sem er og hvenær sem er“ eins og Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir lögfræðingur þýðir það í kandídatsritgerð sinni, „Nauðgun frá sjónarhóli kvennaréttar“. Schulhofer telur jafnframt að kynferðislegt sjálfræði, eða kynfrelsi eins og ég hef hér nefnt það, eigi að vera grundvallarhugtak í lagasetningu um kynferðisofbeldi og að brotið sé gegn kynfrelsi þegar gerandinn sýnir kynferðislega hegðun án þess að tryggja að hann hafi til þess fullgilt samþykki hjá þeim sem hegðunin beinist að.
Konur hafa á grundvelli reynslu sinnar skilgreint nauðgun sem kynferðisofbeldi karla þar sem sjálfsákvörðunarréttur kvenna er virtur að vettugi og réttur þeirra til sjálfsákvörðunar brotinn á bak aftur.
Ég vil næst víkja að samanburði á ýmsum lagaákvæðum sem vernda friðhelgi einkalífs til að varpa dýpra ljósi á tilgang þessa frumvarps. Ég nefndi það að núgildandi ákvæði 194. gr. sem varð til með lagabreytingu 4. apríl 2007 og reyndar ákvæði sem gilti áður að þar skipti verknaðaraðferðin mun meira máli en verndarhagsmunirnir og samþykkið, þ.e. hvernig ódæðið var framið.
Í nauðgunarmáli samkvæmt núgildandi ákvæðum og þeim sem áður giltu þarf ásetningur gerandans að ná til allra efnisþátta nauðgunarákvæðisins. Þess virðist krafist að gerandinn hafi gert sér grein fyrir því að verknaðurinn hafi verið framinn gegn vilja brotaþola. Í málum þar sem engir líkamlegir áverkar sjást snýst sönnunin oft um það hvort gerandinn hafi gert sér grein fyrir því hvort þolandi var samþykkur samræðinu eða ekki.
Þetta fer á skjön við önnur ákvæði almennra hegningarlaga sem vernda friðhelgi einkalífs. Ég nefni sem dæmi ákvæði 228. gr. almennra hegningarlaga um bréfleynd þar sem talað er um að menn hnýsist í skjöl, bækur o.s.frv. og það talið refsivert. Nauðgunarákvæði 194. gr. almennra hegningarlaga veitir ekki sömu vernd og bréfleyndarákvæði 228. gr., það er mín eindregna skoðun.
Sama gildir um hegningarákvæðið sem verndar fólk fyrir húsbroti. Þar segir, með leyfi frú forseta:
„Ef maður ryðst heimildarlaust inn í hús eða niður í skip annars manns“ o.s.frv. varðar það fangelsi eða sektum.
Þarna er talað um „heimildarlaust“ og þar er lögð áhersla á samþykki eða samþykkisleysið. Um þetta hegningarlagaákvæði gildir hið sama og um bréfleyndarákvæðið, verndarhagsmunirnir eru minni en alls ekki jafnströng skilyrði um verknaðaraðferð og 194. gr. kveður á um. Hér er beinlínis höfðað til þess að samþykki þurfi og það er í fullu samræmi við grunnhugsun mannréttindaákvæða um friðhelgi einkalífs.
Ég vil gera frekari samanburð og nú á hegningarlagaákvæði sem varðar manndráp og líkamsárásir. Í 211. gr. almennra hegningarlaga segir að hver sem sviptir annan mann lífi skuli sæta fangelsi, ekki skemur en fimm ár og allt að ævilangt. Það skiptir akkúrat engu máli hvernig morðið er framið, manndrápið er refsivert. Það gildir einnig um líknarmorð, þau eru refsiverð. Í líkamsárásarmálum skipta afleiðingarnar einna mestu máli varðandi sönnun en ekki verknaðaraðferðin, hvort maður veldur líkamstjóni með hamri, sög, hnefum eða öðrum bareflum, það skiptir engu máli. Þær eru refsiverðar ef afleiðingar koma fram, sama hvernig að ofbeldinu var staðið, þ.e. afleiðingarnar, líkið eða líkamstjónið, ráða sönnun finnist gerandinn, finnist einhver sá sem viðurkennt hefur að hafa orðið manni að bana eða slegið til hans svo að mannsbani hlýst af eða líkamsmeiðingar. Eins og ég sagði áðan er í nauðgunarmálum hins vegar lögð áhersla á verknaðaraðferðina, hvernig ofbeldið var, hvort hótunum var beitt eða annars konar ólögmætri nauðung.
Sem fyrr segir gefur réttarvörslukerfið andlegum afleiðingum nauðgana allt of lítinn gaum. Sú staðreynd er meginhvati þess að þetta frumvarp er flutt. Þessi mismunun eftir ofbeldisbrotaflokkum og núgildandi nauðgunarákvæði almennra hegningarlaga standast að mínu mati ekki mannréttindaákvæði um friðhelgi einkalífs.
Það er að gefnu tilefni sem ég flyt þetta frumvarp, það er ekki að ástæðulausu. Í mars 2005 lýsti mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna yfir áhyggjum vegna ofbeldis gegn konum á Íslandi, þá sérstaklega vegna kynferðisofbeldis.
Finnskur sérfræðingur mannréttindanefndarinnar gerði athugasemd í skýrslunni sem er svohljóðandi í lauslegri þýðingu minni, með leyfi frú forseta:
„Voru allar konurnar að ljúga eða stóð yfirvöldum á sama? Voru skilaboðin þau að konur ættu alls ekki að kæra nauðgun þar sem þær mundu aðeins lenda í vandræðum?“
Þetta er reynsla kvenna í dag sem verða fyrir kynferðisofbeldi. Kærur eru þýðingarlitlar og oft þýðingarlausar. Ég vík að þeirri staðreynd síðar að aðeins 5% af kærum vegna nauðugunarmála til lögreglu á árinu 2003 leiddu til sakfellingar fyrir dómi en hlutfallið í líkamsárásarmálum og manndrápsmálum er vel yfir 95%. Af hverju? Ég ítreka að andlegar afleiðingar nauðgana eru mun meiri, alvarlegri og varanlegri en þær líkamlegu. Það eru beinlínis löglíkur á því, lögfull sönnun af sönnunarefnum opinbers réttarfars að nauðgun hafi verið framin ef liggur fyrir álit hlutlausra sérfræðinga að þolandinn hafi orðið fyrir slíku áfalli við kynmök að þau andlegu einkenni, sem ég mun víkja að á eftir, koma fram.
Ég vil fyrst víkja örstutt að líkamlegum áverkum. Í skýrslu nauðgunarmálanefndar frá árinu 1989 kom fram að 48% kvenna veittu enga mótspyrnu. Þeim er reyndar ráðlagt það. Í 26% tilvika var mótspyrnan aðallega fólgin í því að reyna að verja sig og mótmæla. Aðeins fjórðungur kvennanna veitti líkamlega mótspyrnu. Rúmur helmingur kvennanna hlaut nánast enga líkamlega áverka og hjá þriðjungi var um minni háttar áverka að ræða, rispur. Umtalsverðir líkamlegir áverkar voru í aðeins 10% tilvika.
Hvert á maður þá að leita með afleiðingar ef það er í mun færri tilvikum sem þær koma fram á líkama kvennanna? Þá leitar maður auðvitað í öðrum afleiðingum sem eru andlegar og mjög svo áþreifanlegar. Þetta gerum við í kynferðisbrotum sem beinast gegn börnum. Þar er leitað sérfræðinga, þar hefur verið búinn til réttarrammi, þar eru kallaðir til óháðir sérfræðingar, sitja jafnvel sem meðdómendur og skera úr um það hvort börnin séu trúverðug, hvort afleiðingar þessarar ofbeldisfullu árásar á barn komi fram. Þær koma sannarlega fram í lífi barnsins. Grundvelli er kippt undan lífi barns sem lendir í kynferðislegu ofbeldi, það er sannað og hefur margoft sýnt sig, sérstaklega ef það er endurtekið.
Ég hef haldið því fram að með því að leita að hinum andlegu áverkum í kjölfar nauðgana, bæði tímabundnum og varanlegum, leita að hinni svokölluðu áfallastreituröskun sem verður, sé komin fram lögfull sönnun. Samkvæmt alþjóðlegum sjúkdómsgreiningaskrám er áfallið í kjölfar nauðgunar líkt því sem einstaklingar verða fyrir við stórfelldar náttúruhamfarir, stríðsátök og stórslys. Það er sameiginlegt með fólki sem lendir í slíkum aðstæðum að það hefur það ekki í hendi sér hvort það lifir eða deyr. Þessum áföllum fylgja mjög sterk viðbrögð, bæði tímabundin og langvarandi, sem kallast áfallastreituröskun. Almennt getur slík lífsreynsla leitt til viðvarandi ástands.
Fyrstu viðbrögð þolenda nauðgana einkennast oft af doða, tómleika og óraunveruleikatilfinningu, brengluðu tímaskyni, spennu og öðrum áfallseinkennum. Það er erfitt fyrir þolendur að átta sig á hvað í raun og veru hafi gerst og frásögn þeirra af atburðinum er oftar en ekki samhengislaus. Viðbrögð við því eru að það er notað gegn konum sem kæra að þær séu samhengislausar í frásögnum sínum. Það er sem sagt algengt að eðlileg viðbrögð við ofbeldinu séu notuð fyrir dómi sem sönnun gegn þolandanum af því að þolandinn er kannski ekki sjálfri sér samkvæm í frásögn vegna áfallastreituröskunarinnar.
Á neyðarmóttöku kvenna eru fyllt út eyðublöð um fyrstu líkamlegu viðbrögðin sem konur sýna við skoðun. Slíkar skýrslur eru óskemmtileg lesning. Líkamlegu viðbrögðin eru skjálfti, hraður hjartsláttur, kviðverkir, niðurgangur, ógleði, uppköst og svimi, sem eru mjög áberandi í meiri hluta tilvika, og síðan hræðslan og óöryggið sem fylgir viðkomandi. Eirðarleysi, grátköst og ótti eru mjög algeng og þessi fyrstu viðbrögð vara mörg hver fremur stutt. Á þessum tíma geta tilfinningaleg viðbrögð verið frekar lítil og ekki í samræmi við aðstæður, eins og ég greindi frá áðan. Mörgum finnst þetta undarlegt og jafnvel óeðlilegt en það ber að varast að draga miklar ályktanir út frá því vegna þess að hinn andlegi doði er tímabundin vörn gegn hugsunum og tilfinningum tengdum ofbeldisverkinu, nauðguninni. Það er alveg ábyggilegt í mínum huga að kona sem kemur í þessu ástandi frá samförum kemur ekki frá sjálfviljugum samförum, því fer víðs fjarri. Komi þessar tímabundnu afleiðingar fram tel ég að komin sé fram full sönnun finnist gerandinn.
Langtímaafleiðingarnar eru ekki síður mjög sterkar, og þær vara oft árum saman, sem unnt er að byggja sönnunarfærslu á með dómkvöddum meðdómendum, matsmönnum eða öðrum sérfræðilegum hætti. Vel að merkja, af því að því hefur verið haldið fram að konur geti gert sér þessar afleiðingar upp er svipaður fjöldi þar sem upp koma rangar ásakanir í nauðgunarmálum og í öðrum brotaflokkum, um eða yfir 1%.
Ég vík næst að langtímaafleiðingunum af nauðgunum. Skömmin er séreinkenni þessara brota, þolandinn skammast sín, 85% þolenda upplifa skömm af því að hafa orðið þolendur þessa ofbeldis. Það er sérstakt og tengist auðvitað menningarlegu uppeldi og aðstæðum í þjóðfélaginu o.fl. Aðeins í 55% tilvika er reiðin sterkasta viðbragðið sem sýnir okkur samanburðinn. Allir verða reiðir ef þeir verða fyrir líkamsárás, ábyggilega yfir 99%, svo þetta er sérkennilegt. Það er líka einkennandi fyrir þolendur að kenna sjálfum sér um en varpa ábyrgðinni ekki á gerandann, það er eitt einkennið. Síðan kemur í kjölfarið léleg sjálfsmynd, djúp sektarkennd og depurð í 70% tilvika. Konum líður í skemmri og lengri tíma eins og þær séu óhreinar. Eitt einkennið er að konur þvo sér mjög oft eftir slíkan atburð, reyna að þvo atburðinn af sér.
Það er líka upplýst að þunglyndi eftir nauðgun getur orðið langvarandi. Þunglyndi og depurð leiða oft til kvíða, svefntruflana og einangrunar. Það er enn fremur hætta á sjálfsvígum. Það er eitt einkenni sem kemur mjög upp í nauðgunarmálum og líka málum sem varða stórslys og náttúruhamfarir eða alvarlega atburði sem maður upplifir, þ.e. að upplifanir tengdar ofbeldinu koma allt í einu fram þegar minnst varir. Jafnvel mörgum mánuðum eða árum eftir atburðinn koma þessar svipmyndir ofbeldis upp í hugann og þolendur endurlifa atburðinn.
Aðrar varanlegar afleiðingar eru ótti og tilfinningalegur doði, sem ég nefndi áðan, konur deyfa allar tilfinningar um atburðinn til að komast af. Í mörgum tilvikum koma upp mjög alvarleg hegðunarvandamál, einbeitingarskortur og síðan er sjálfssköðun þekkt, að konur skeri sig í handleggi og fái átröskun. Það er hægt er að rekja það allt til þessa ofbeldis.
Þessi einkenni segja þó ekki alla söguna því að afleiðingarnar eru alvarlegri ef litið er til langs tíma. Sumir þolendur þróa með sér varanlegan sjúkdóm sem mótar alla þeirra tilveru og fjölskyldna þeirra til frambúðar. Stöðug spenna getur fylgt í kjölfarið og ef ekkert er að gert gefur sig eitthvað líkamlegt eða andlegt. Það hefur fram komið í viðtölum við sérfræðinga að 60–70% kvenna með geðraskanir eða kvenna sem hafa misst tök á lífi sínu, kvenna sem hafa lent í neyslu fíkniefna og í afbrotum, eiga sögu að baki um kynferðislegt ofbeldi. Það er sem betur fer hægt að græða mikið af þessum sárum en það er ekki almennt að slíkt sé gert. Til þess að græða slík sár þarf áfallateymi, teymi sérfræðinga sem aðstoða viðkomandi til að komast á fæturna á nýjan leik í lífi sínu, teymi iðjuþjálfa, sálfræðinga, geðlækna og annarra.
Það er líka eitt einkenni í þessu að sambúðir kvenna sem hafa verið þolendur nauðgana eða sambönd við karlmenn vara oft stutt eða þær lenda í miklum erfiðleikum í sambúð. Skilnaðartíðni er talsvert mun hærri en ella. Komi þessar afleiðingar fram fullyrði ég að það er einsýnt að um nauðgun hafi verið að ræða. Hér ætla ég líka að halda því til haga að kynferðislegt ofbeldi og afleiðingar þess eru eitt stærsta heilbrigðisvandamál kvenna í heiminum í dag að mati sérfræðinga.
Mannréttindasáttmálinn var innleiddur í íslenskan rétt með lögum nr. 62/1994 og umtalsverðar breytingar voru gerðar á mannréttindakafla stjórnarskrárinnar árið 1995. Af mannréttindaákvæðum leiðir að allan vafa ber að túlka mannréttindum og einstaklingum í hag. Friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu eru meðal dýrmætustu réttinda hvers einstaklings. Þar trónir efst, eins og ég sagði áðan, rétturinn til lífsins, síðan til líkama og sálarlífs, þar með er talið kynfrelsi.
Orðalag áður gildandi og núgildandi ákvæða almennra hegningarlaga um kynferðisbrot endurspeglar ekki þessa réttarþróun í mannréttindum. Að mínu mati gildir það sama um rannsóknir, sönnunarmat, ákærur og dóma í þessum málaflokki eins og tölulegar staðreyndir staðfesta. Ég nefni það aftur að af 103 tilkynningum til lögreglu árið 2003 um brot gegn 194. gr., 195. gr. og 196. gr. almennra hegningarlaga um kynferðisbrot leiddu aðeins fimm kærur til lögreglu til sakfellingar fyrir dómi. Hvað er að þessu þjóðfélagi okkar? Þetta ástand er gjörsamlega óþolandi og særir réttlætiskennd allra djúpt sem eitthvað þekkja til þessara mála. Auðvitað leysir orðalag ákvæðisins ekki allan vanda, og ekki með því að breyta því, en það mundi hjálpa verulega til.
Ég set spurningarmerki við fleira en orðalag ákvæðisins. Ég set spurningarmerki við rannsóknir, sönnunarmat og sönnunarbyrði í kynferðisbrotamálum. Eins og staðan er nú er ákæruvaldinu gert að sanna að samþykki til kynmaka hafi ekki verið fyrir hendi, það er nánast þannig. Ella virðist gerandinn almennt ekki ákærður eða sakfelldur, jafnvel þótt andlegir áverkar séu til staðar sem að mati sérfræðinga eru afleiðingar nauðgunar. Það stenst ekki friðhelgisákvæði stjórnarskrárinnar.
Ég vil þó halda því til haga að á þessu hefur orðið nokkur breyting, en alls ekki nægileg, síðustu 6–8 ár vegna þess að konur hafa tekið þetta mál upp á arma sína og flutt það fram með skynsamlegum og málefnalegum hætti. Dómstólar hafa í ríkara mæli litið til þessara andlegu afleiðinga en það skortir þó enn verulega mikið á að það sé gert. Ég segi það og ítreka enn og aftur að það er ástæða til að árétta að tímabundnar og varanlegar andlegar afleiðingar nauðgana eru augljósar, þær eru þekktar, þær eru einatt alvarlegri og þær eru síður læknanlegar en líkamlegir áverkar meiri háttar líkamsmeiðinga. Komi þessar andlegu afleiðingar fram, studdar skýrslum sérfræðinga eða að mati dómkvaddra sérfræðinga, eru komnar fram fullnægjandi sannanir fyrir því að þolandanum hafi verið þröngvað til kynmaka, ofbeldi hafi verið beitt.
Með þessu frumvarpi um breyting á 194. gr. almennra hegningarlaga er lagt til að réttarvörslukerfið taki upp allt aðra hugsun, allt aðra nálgun í kynferðisbrotamálum og að réttarvernd kynfrelsis verði tryggð. Ég vil að rannsóknaraðferðum verði breytt og umbylt og sönnunarbyrði í málum sem varða brot gegn kynfrelsi. Ég vil að megináhersla verði lögð á verndarhagsmunina, tímabundnar og varanlegar andlegar afleiðingar og samþykki, allt í samræmi við grunnhugsun mannréttindaákvæða um friðhelgi einkalífs.
Í frumvarpinu felast einnig skýr skilaboð til réttarvörslukerfisins um að taka nauðgunarmál sömu tökum og önnur ofbeldisbrot, eins og manndráp og líkamsárásir. Ég ítreka enn og aftur að fyrst og síðast þarf að horfa til afleiðinganna. Það þarf að fara fram heildstæð rannsókn á öllum þáttum málsins, ekki síst andlegum afleiðingum, tímabundnum og varanlegum.
Með þessu frumvarpi er sjónum réttarvörslukerfisins beint að sönnunargögnum sem það hefur ekki sinnt að afla í nauðgunarmálum. Ég ítreka enn og aftur vegna misskilnings sem komið hefur fram um þetta frumvarp að í því er ekki gert ráð fyrir því að slakað sé á meginreglum opinbers réttarfars um sönnun. Það er engin þörf á því til að ná fram sakfellingu ef réttra aðferða er gætt við rannsókn lögreglu og öflun sönnunargagna. Í frumvarpinu kemur einnig fram sá vilji löggjafarvaldsins að dómstólar þyngi refsingar fyrir kynferðislegt ofbeldi með því að færa lágmarksrefsingu úr einu ári í tvö.
Ég ætla, frú forseti, ekki að hafa þessi orð fleiri en leyfi mér að vísa í ítarlega greinargerð með frumvarpinu sem byggir á fræðigreininni „Réttarvernd kynfrelsis“ eftir þann sem hér stendur og Jóhönnu Katrínu Magnúsdóttur. Hún birtist í afmælisriti Guðrúnar Erlendsdóttur, fyrrverandi hæstaréttardómara, Guðrúnarbók, sem gefin var út í Reykjavík í júní 2006. Sú fræðigrein byggir á ítarlegum rannsóknum og skoðunum, ítarlegum viðtölum við fjölda sérfræðinga og yfirferð yfir dómafordæmi og svo eigin reynslu þess sem hér talar af réttargæslustörfum og lögmannsstörfum fyrir þolendur þessa ofbeldis. Við skulum taka okkur taki, þetta er svartur blettur á íslensku þjóðfélagi.