138. löggjafarþing — 79. fundur,  23. feb. 2010.

vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum.

382. mál
[16:46]
Horfa

félags- og tryggingamálaráðherra (Árni Páll Árnason) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Samkvæmt 1. gr. laga um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda hafa kjarasamningar milli aðila vinnumarkaðarins gildi sem lágmarkskjör hér á landi og öllum sem samningarnir taka til er skylt að virða þá sem lágmarkskjör á vinnumarkaði. Þetta frumvarp byggir á þeirri staðreynd og breytir í engu umgjörð kjarasamninga í landinu. Ég tel ekki að þetta frumvarp brjóti í bága við félagafrelsisákvæði stjórnarskrár, ekki frekar en 1. gr. laganna um starfskjör launafólks í skyldutryggingu lífeyrisréttinda. Samfélagslegir hagsmunir af því að tiltekin lágmarkskjör séu virt á vinnumarkaði eru slíkir að þetta ákvæði hefur verið talið standast fyrir dómstólum. Félagafrelsið lýtur auðvitað takmörkunum og meðal þeirra er sú takmörkun að menn geti ekki skorast úr leik gagnvart lágmarksákvæðum í kjarasamningum.

Það eftirlit sem hér er opnað fyrir felur fyrst og fremst í sér eftirlit með afmörkuðum þáttum, annars vegar að þeir sem eru á vinnustöðum hafi lögmætt dvalarleyfi og séu í lögmætum atvinnutilgangi, brjóti ekki lög um atvinnuleysistryggingar og að launin sem þeim eru greidd séu í samræmi við kjarasamninga. (PHB: Fá þingmenn svona skírteini?) Á hvoru tveggja (Gripið fram í.) hefur verið umtalsverður misbrestur á undanförnum árum og því mjög mikilvægt að taka á þeim samfélagsvanda.