138. löggjafarþing — 79. fundur,  23. feb. 2010.

vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum.

382. mál
[16:48]
Horfa

Illugi Gunnarsson (S):

Frú forseti. Það sem er ánægjulegt við það mál sem hér er verið að ræða er að það byggir á því að það séu aðilar vinnumarkaðarins sjálfir sem hafa eftirlit með framkvæmd kjarasamninga og ég er ánægður með að ekki skuli hafa verið farið inn á þá braut að ríkisvaldinu hafi verið falið það hlutverk. Nóg er nú samt á þessum síðustu og verstu tímum um ríkisvæðinguna og ríkisforsjárhyggjuna og því ber að fagna þessari niðurstöðu.

Það sem ég tel að skipti líka máli í þessu er að tilgangur þessa frumvarps er að tryggja að þeir kjarasamningar sem gerðir hafa verið haldi, að farið sé eftir þeim. Því miður eru til dæmi í okkar samfélagi um slæma meðferð, sérstaklega á þeim erlendu verkamönnum sem hafa hingað komið, og slæman aðbúnað sem á auðvitað ekki að líðast í okkar samfélagi. Það er ekki bara rangt gagnvart þeim einstaklingum sem hingað koma og vilja taka þátt í samfélagi okkar með því að vinna hérna, það skiptir miklu máli að við tökum vel á móti fólki sem vill koma til Íslands og vinna, þ.e. ef vinnu er að hafa. Það eru sanngirnissjónarmið að atvinnurekendur sem virði samninga, greiði þá skatta og skyldur sem ætlast er til að menn greiði, og reki starfsemi sína með eðlilegum hætti, en þeir eru síðan oft og tíðum í samkeppni við atvinnurekendur sem ekki gera slíkt hið sama. Um þetta eru því miður dæmi. Ég lít svo á að þetta mál sé ágætt innlegg í það að tryggja að farið sé eftir þeim samningum sem gerðir eru á vinnumarkaði.

Mér finnst reyndar nokkuð sérstakt að menn þurfi að bera skírteini á sér öllum stundum. Ég hef svo sem ekkert hugleitt hvort hægt er að koma þessu máli öðruvísi fyrir. Það er eitthvað ónotalegt við þá tilhugsun að allir þeir sem eru við störf þurfi að hafa sérstakt skírteini til að sanna að þeir séu í vinnunni og það með lögmætum hætti og að hvenær sem er geti einhver komið til að skoða þessi skírteini. En ég ætla að menn hafi velt þessum þætti vel fyrir sér og mun leggja það til við þá sem sitja í þeirri nefnd sem þetta mál fer til, að þeir velti því fyrir sér hvort einhver vægari úrræði séu til hvað það varðar.

Að öðru leyti vil ég segja að þetta mál mun örugglega gagnast aðilum vinnumarkaðarins hvað þetta varðar og ætti í það minnsta að hjálpa okkur til að berjast gegn starfsemi þar sem menn fara ekki eftir lögum og reglum og það skiptir auðvitað miklu máli.