vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum.
Frú forseti. Það er ágætt að heyra að menn séu að vinna hart að því að virkja atvinnulausa. Það mætti ganga miklu hraðar fram í því og alveg sérstaklega vegna þess að það er heilmikill mannafli til sem eru atvinnulausir. Fjöldi atvinnulausra, sérstaklega fólk sem er komið á eldri ár, komið yfir 55 ára aldur, fær bara ekki vinnu en það hefur mikla reynslu og mikla þekkingu og gæti kennt þeim ungu eitt og annað um atvinnulífið, um verklag og annað slíkt. Þetta er bara spurning um skipulagningu.
Ef Vinnumálastofnun ræður mann sem er búinn að vera atvinnulaus lengi og hann er kannski 55 ára eða sextugur, þarf ekki að borga honum neitt voðalega há laun, ekkert miklu hærri en atvinnuleysisbætur, þannig að ríkið sparar á þeim endanum atvinnuleysisbæturnar. Þetta er því kannski ekkert voðalega mikill kostnaður og ég hugsa að bara það að skylda menn til að mæta einhvers staðar spari miklu, miklu meira en það vegna þess að misnotkunin nánast hverfur, hún ætti alveg að hverfa.
Varðandi það að fylgjast með því að lágmarkslaun séu greidd, það er vissulega göfugt verkefni líka en ég sé ekki hvernig menn gera það þó að þeir lendi á einhverjum vinnustað og þar dúkki einhver maður upp sem á að vinna þar. Hver veit hvort hann vann allan daginn, hver veit hvort hann vann um síðustu helgi, alla helgina, og fékk ekki borgað fyrir eða var alltaf á dagvinnukaupi? Menn vita það í rauninni ekki. Það þyrfti að fara í miklu nánari rannsóknir ef menn ætla að fara að kanna lágmarkslaun. Svo vil ég benda á að skatturinn hefur allar þessar upplýsingar, hann fær upplýsingar um staðgreiðslu og annað slíkt, hann veit hvaða menn eru að vinna hvar, þannig að það á heldur ekki að þurfa svona eftirlit. Ég vara við því ef menn eru að negla niður ákveðið kerfi stéttarfélaga sem ég held að geti orðið mjög stofnanakennt.