138. löggjafarþing — 85. fundur,  3. mars 2010.

störf þingsins.

[13:31]
Horfa

Þór Saari (Hr):

Virðulegur forseti. Það er svolítið erfitt að kveðja sér hljóðs um störf þingsins ef þingið er ekki hérna en ég ætla samt að gera tilraun og vænti þess að þingmenn fylgist með í sjónvarpi.

Vandi heimilanna er mikill, frú forseti, og fjölmörg heimili eru föst í algjöru öngstræti forsendubrests húsnæðislána og takmarkaðrar greiðslugetu. Á sama tíma er alkul á fasteignamarkaði og ekkert útlit fyrir breytingu þar á. Í allsherjarnefnd er verið að fjalla um 7. mál þingsins, þ.e. frumvarp Lilju Mósesdóttur o.fl. um samningsveð. Á mjög góðum fundi nefndarinnar í gær kom í ljós að neikvæðar umsagnir Verslunarráðs og Seðlabankans eiga ekki við rök að styðjast og að ekki er ástæða til að óttast spár þeirra um hugsanleg slæm áhrif frumvarpsins. Rétt er að geta að Íbúðalánasjóður, stærsti eigandi húsnæðislána á landinu, gerir ekki athugasemd við málið.

Þar sem einhver tregða virðist vera í sumum þingmönnum Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar við að styðja þetta brýna mál hvet ég þingmenn þessara flokka til að taka það fyrir á þingflokksfundum sínum síðar í dag og skoða málið rækilega. Hér er um gríðarlega mikilvægt mál að ræða sem mun ekki leiða til kostnaðarauka fyrir neinn sem það snertir en það mun á hinn bóginn leysa fjölda fólks úr miklum og óvinnandi skuldaklafa sem og að liðka fyrir þíðu fasteignamarkaðar, en virkur fasteignamarkaður er einn af mikilvægustu þáttum hagkerfisins á Íslandi. Þess má geta að innan bankanna er starfsfólk þeirra ekki mótfallið framgangi þessa máls þar sem það gerir sér líka grein fyrir því í hvaða sjálfheldu fasteignamarkaðurinn er kominn. Ef einhver ótti er til staðar meðal þingmanna og þingflokka um slæmar afleiðingar af samþykkt þessa máls hvet ég þá til að skoða það betur og ég skal sjálfur útskýra hvenær sem er fyrir þeim nauðsyn þess og slá á þann ótta sem menn hafa við að samþykkja þetta mál. Þetta er gríðarlega brýnt fyrir þjóðfélagið í heild og hagkerfið og ég hvet þingmenn til að taka afstöðu til þess eins fljótt og hægt er.