staðan að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu, munnleg skýrsla forsætisráðherra.
Frú forseti. Það er alveg hárrétt hjá formanni Sjálfstæðisflokksins, hv. þm. Bjarna Benediktssyni, að ég hef beðið um að fá að bera pólitíska ábyrgð á gerðum mínum. Ég hef gert það gjarnan í samhengi við það að þar á hún að hvíla en ekki á embættismönnum eða starfsmönnum okkar sem starfa í umboði og á ábyrgð stjórnvalda sem eiga að bera hina pólitísku ábyrgð. Ég bið menn að hafa það í huga og sérstaklega e.t.v. í framhaldinu hvernig þeir haga orðum sínum í þeim efnum. Það er ekkert vandamál að takast á við hina pólitísku ábyrgð, það eru ýmsar leiðir til þess að kalla hana fram, fleiri en þær sem hv. þingmaður nefndi, að ganga til kosninga.
Þjóðaratkvæðagreiðslan er að baki og desemberlögin eru þar með fallin úr gildi og viðaukasamningarnir frá í október sem voru andlag þeirra. Tæknilega gilda þá ágústlögin og samningarnir frá 5. júní. Og málið er óleyst. (Gripið fram í: Og ríkisstjórnin …) Viðfangsefnið er sem sagt áfram að vinna að því að leysa þetta mál þannig að það og fjölmörg önnur mál sem því tengjast beint eða óbeint geti síðan haft sinn framgang. Ég vona, og vil fyrir mitt leyti leggja mitt af mörkum til þess, að sú samstaða sem tekist hefur á undanförnum vikum um að reyna að vinna að þessu máli geti haldist. Ég tel sjálfgefið að við reynum að halda áfram þar sem frá var horfið, á grundvelli þeirrar samstöðu og með þá sömu samninganefnd sem skipuð var í góðu samkomulagi flokkanna og hefur að mínu mati unnið ákaflega gott starf.
Það er svo sjálfstætt mál að við þurfum að velta ýmsu fyrir okkur, m.a. í framhaldi af þessari fyrstu þjóðaratkvæðagreiðslu eftir að lýðveldið var stofnað með einni slíkri. Þar held ég alveg sérstaklega að Alþingi sem stofnun og við sem stuðningsmenn þingbundinna ríkisstjórna eigum að spyrja okkur ýmissa spurninga. Löggjafarvaldið er hér samkvæmt stjórnskipun okkar sem og fjárstjórnarvaldið og framkvæmdarvaldið hefur verið í höndum þingbundinnar ríkisstjórnar, oftast meirihlutaríkisstjórnar með sárafáum undantekningum minnihlutastjórna og einnar utanþingsstjórnar. Það sem meira er þó um vert er að ábyrgðin er hér og hvergi annars staðar. Enginn annar en Alþingi hefur hana á sínum herðum, og framkvæmdarvaldið eins og fer um það samkvæmt lögum.
Aðalatriðið er nú verkefnin fram undan því að það sem er liðið er liðið, þar á meðal þessi þjóðaratkvæðagreiðsla með skýrri niðurstöðu. Ég hef í dag rætt við bæði formann samninganefndarinnar og fjármálaráðherra Hollands um það hvernig við komum málunum aftur á hreyfingu. Hann hafði þá áður talað við starfsbróður sinn í Bretlandi og er staðfest að það er fullur vilji til staðar hjá viðsemjendum okkar, eða gagnaðilum, til að reyna áfram að vinna að lausn málsins að nauðsynlegri undirbúningsvinnu undangenginni sem ætti ekki að taka langan tíma. Ég geri mér vonir um að innan ekki mjög margra daga verði raunhæft að alvörusamingaviðræður geti hafist á nýjan leik.
Það er okkur mjög mikilvægt, og þarf ekkert að fara um það mörgum orðum, að komast áfram og sinna samhliða úrlausn Icesave-málsins öllum þeim brýnu verkefnum sem hér er við að fást. Ísland á enn í erfiðleikum, hér eru enn erfiðar aðstæður og það stóð svo sem aldrei beinlínis til að þetta yrði mjög auðvelt, eða hvað, sem við værum að glíma við frá og með haustinu 2008. Höfum það öll í huga og það varðar okkur öll, a.m.k. flestöll.
Það er mikilvægt að við getum eftir því sem í boði er haft hér meira andrúmsloft samstarfs og samstöðu. Það á ekki síst við um þessa stofnun. Ég held að hún þurfi á því að halda sjálf. Ég held að Alþingi ætti að velta því fyrir sér hvernig Alþingi sem stofnun er á vegi statt gagnvart trúnaði og trausti umbjóðanda síns, þjóðarinnar. Við þurfum og við eigum að vanda okkur við að vinna saman öll þau verkefni sem við getum og greina þá heiðarlega á um hin sem við erum ekki sammála um. Það er til þess ætlast og þjóðin á skilið að hún hafi þannig þjóðþing og þannig stjórnvöld þegar erfiðir tímar ganga yfir. Það eru brekkur eftir, ekki bara ein há eins og segir í kvæðinu, heldur margar og langar.