138. löggjafarþing — 88. fundur,  9. mars 2010.

störf þingsins.

[13:42]
Horfa

Kristján Þór Júlíusson (S):

Virðulegi forseti. Í gær mælti umhverfisráðherra fyrir frumvarpi um mannvirki. Þar er kveðið á um nýja ríkisstofnun, Byggingarstofnun. Þar eiga að starfa 29 starfsmenn. (Utanrrh.: Hún er úti á landi.) Í dag mælir menntamálaráðherra fyrir frumvarpi til fjölmiðlalaga. Þar er kveðið á um nýja ríkisstofnun, Fjölmiðlastofu. Þar eiga að starfa fjórir starfsmenn til að byrja með. Engin þessara áforma eru á fjárlögum íslenska ríkisins. Áætlaður kostnaður við þessi verkefni er á bilinu 200–250 millj. kr. á hverju ári. Hallinn á fjárlögum er 100.000 millj. kr.

Á næsta ári liggur fyrir okkur að skera niður um 50.000 millj. kr. og þá verður spurt um forgangsröð. Ég spyr: Er búið að setja stefnuna? Ætlar ríkisstjórnin að sigla sinn sjó eða ætlar ríkisstjórnin að koma um borð í þjóðarskútuna, hripleka eins og hún er og leggjast á árar með þjóðinni?

Ég spyr hv. formann fjárlaganefndar, Guðbjart Hannesson, hvernig honum hugnist þessi sýn og sú sigling sem ríkisstjórnin er á með þeim boðskap til þeirra sem eiga í vandræðum með brýnustu nauðþurftir þegar við fáum frumvörp sem þessi fram á Alþingi í því efnahagsástandi sem nú um stundir ríkir.