störf þingsins.
Frú forseti. Það er rétt sem hér hefur komið fram í máli hv. þingmanna að á Norðurlöndum sé krafa um að Íslendingar standi við sínar alþjóðlegu skuldbindingar, annars verði ekkert af lánafyrirgreiðslu af hálfu þessara ríkja til Íslands. Ég held að allir í þessum sal séu sammála um að það sé ekki lagaskylda á Íslendingum að greiða þær skuldir sem stofnað var til vegna Landsbankans, enda kom það fram við afgreiðslu laga í desember.
Það er áhugavert að sjá svar forstöðumanns og forstjóra norska innstæðutryggingarsjóðsins, Arnes Hyttness, þegar hann er spurður eftirfarandi spurningar, með leyfi forseta:
„Er það skoðun ykkar í sjóðnum að ef norskur banki hefði rekið útibú sambærilegt við Icesave í ríki sem EES-samningurinn nær til bæri norska ríkið enga ábyrgð á innstæðum umfram það sem sjóðurinn gæti bætt sparifjáreigendum?“
Arne Hyttnes svarar:
„Ef Landsbankinn hefði verið norskur banki með útibú í Belgíu eða öðru ríki sem samningurinn nær til er ljóst að það væri engin ríkisábyrgð á innstæðunum. Það er afstaða okkar í sjóðnum.“
Ástæðan fyrir því að ég nefni þetta hér er að í máli utanríkisráðherra Noregs kom fram að það væri krafa af hálfu Norðmanna að Íslendingar stæðu við skuldbindingar sínar á grundvelli EES-samkomulagsins. Nú ríður á að bæði fulltrúar stjórnar og stjórnarandstöðu leggist á árarnar og kynni málstað Íslands myndarlega á Norðurlöndunum þannig að misskilningur eins og kemur m.a. fram í máli norska utanríkisráðherrans um að okkur Íslendingum beri skylda samkvæmt EES-samningnum til að greiða þessar skuldir verði leiðréttur. Á sama tíma liggur fyrir sú skoðun forstjóra norska innstæðutryggingarsjóðsins að norska innstæðutryggingarsjóðnum, sem starfar á nákvæmlega sama grundvelli, nákvæmlega sama regluverki, beri engin skylda til þess, (Forseti hringir.) að það sé engin skylda ríkisins að tryggja þær innstæður. Það er mjög mikilvægt, frú forseti, að halda þessum málstað Íslendinga á lofti gagnvart Norðurlöndunum því að það er augljóst (Forseti hringir.) af því sem við heyrum þessa dagana að það er enn verk að vinna hvað það varðar. (Forseti hringir.) Það er töluverður misskilningur greinilega enn þá uppi.