138. löggjafarþing — 88. fundur,  9. mars 2010.

störf þingsins.

[13:49]
Horfa

Árni Þór Sigurðsson (Vg):

Frú forseti. Vegna þeirrar umræðu sem hér er orðin og nokkrir hv. þingmenn hafa vakið máls á tel ég og tek undir að það er mikilvægt að við höldum sjónarmiðum okkar hátt á lofti og komum þeim á framfæri hvar sem tilefni og tækifæri gefst til. Hvað varðar fyrirgreiðslu af hálfu Norðurlandanna og tengingar þeirra við Icesave-málið get ég upplýst að á þeim vettvangi sem ég hef starfað, m.a. í samtölum við norska þingmenn í gegnum EFTA-samstarfið eða danska og sænska þingmenn í gegnum samstarfið á EES-svæðinu, þingmenn Evrópuþings, hefur þessum sjónarmiðum ítrekað verið komið á framfæri og mótmælum við þeim tengingum sem menn hafa gert. Það kann vel að vera rétt hjá hv. þm. Illuga Gunnarssyni að það þurfi að gera enn betur í þessu efni en það er mjög mikilvægt að við höldum þessum sjónarmiðum hátt á lofti því að þau eiga fyllilega rétt á sér.

Hins vegar er líka mikilvægt að við eigum góð samskipti við umheiminn, við nágrannaþjóðir okkar. Í mínum augum, sem formanns utanríkismálanefndar, er mjög þýðingarmikið að Ísland einangrist ekki í samskiptum við önnur ríki og ég hef talað fyrir því að við reynum að byggja upp traust í þeim samskiptum, bæði við viðsemjendur okkar í þessu Icesave-máli og eins við nágrannaþjóðir okkar sem hafa þrátt fyrir allt viljað veita okkur eitthvert liðsinni þó að við höfum að sjálfsögðu líka gagnrýnt það hvernig þeir hafa tengt lánafyrirgreiðslu við Icesave-málið eins og hér hefur komið fram.

Þetta vildi ég bara að gefnu tilefni að kæmi hér fram. Ég tel að allir sem vettlingi geta valdið í því efni, hvort sem það eru þingmenn eða ráðherrar eða aðrir talsmenn íslenskrar þjóðar og fjölmiðlar og hverjir aðrir sem hlut eiga að máli, eigi að hafa þetta í huga og tala máli Íslands í þessu efni.