störf þingsins.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Eygló Harðardóttur fyrir þessa fyrirspurn og þá sérstaklega að vekja athygli á því að enn þá hefur ekki verið gripið til almennrar niðurfærslu á höfuðstóli fasteignalána. Þverpólitísk nefnd sem er núna að störfum gerir sér grein fyrir því að umtalsverðar afskriftir á eignasöfnum bankanna áttu sér stað þegar þau fóru inn í nýju bankana og nefndin hefur farið fram á það að formaður stjórnar Bankasýslunnar, Þorsteinn Þorsteinsson, komi á fund nefndarinnar á mánudaginn í næstu viku og skýri frá þessu svigrúmi sem er í bönkunum til að afskrifa fasteignalánin.
Við sem sitjum í þessari nefnd erum ekki tilbúin til að einbeita okkur að fleiri verkefnum fyrr en við erum búin að fá á hreint hvort það sé svigrúm, og ef það er þá hversu mikið það er. Við teljum nefnilega að niðurfelling eða niðurfærsla á höfuðstóli lána muni tryggja þegar til lengri tíma er litið meiri endurheimtur en ef afskriftirnar fara í aðra hluti eins og t.d. að greiða vel launuðum bankastarfsmönnum kaupauka og bónusa fyrir akkúrat ekki neitt. Við viljum ekki aðeins fara út í þessar niðurfærslur á höfuðstóli lána heldur jafnframt setja á fót nokkurs konar umboðsmann skuldara sem yrði t.d. í formi þess að Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna yrði útvíkkuð og fengi það vald að vera með óháð mat á úrræðum bankanna.