138. löggjafarþing — 91. fundur,  15. mars 2010.

sveitarstjórnarlög.

452. mál
[17:36]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S):

Herra forseti. Við ræðum frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 45/1998, með síðari breytingum. Af hverju ætli við séum að ræða þetta mál hér og nú á hinu háa Alþingi? Við erum að ræða það vegna þess að tekjur sveitarfélaga hafa dregist saman. Við erum að ræða það vegna þess að útgjöld hafa aukist, m.a. félagsleg útgjöld vegna versnandi stöðu heimilanna og atvinnuleysis. Við erum að ræða það vegna þess að sveitarfélögin hafa lagt áherslu á að verja grunnþjónustuna. Við erum að ræða það, herra forseti, vegna þess að lánskjör hafa versnað, aðgangur að lánsfé hefur takmarkast hvort heldur er til skuldbreytinga eða töku nýrra lána, og vegna þess að skuldir hafa aukist með tilheyrandi fjármagnskostnaði. Þetta er það sem sveitarfélögin standa frammi fyrir. En, herra forseti, þetta er nákvæmlega það sama og ríkissjóður stendur frammi fyrir, nákvæmlega sömu þættir sem ríkissjóður stendur frammi fyrir eins og vandi sveitarfélaganna er. Þetta er ekkert öðruvísi en það að þetta eru ívið minni einingar. Við erum að tala um að tekjur hafi dregist saman, útgjöld aukist, lánsfjármagn sé af skornum skammti og við ræðum hér að eftirlitsnefnd sveitarfélaga eigi að hafa greiðari og meiri aðgang að fjárhagsáætlun sveitarfélaga og útgjöldum og hvernig sveitarfélögin standa sig í þeim efnum. Á það get ég fallist að sveitarfélögin ættu að skila inn ársfjórðungslega upplýsingum um stöðu sína, tekjur og útgjöld og það sem fram undan er, þannig að hægt væri að bregðast við hjá sveitarfélögum, sem ég held reyndar að flest þeirra geri. Þau gera upp ársfjórðungslega þó að þau skili því ekki til ríkisins á einn eða annan hátt. En hér er verið að kalla eftir breytingu til að eftirlitsnefndin geti haft greiðari aðgang inn, komið að og bent á.

Alþingi er löggjafarvaldið gagnvart framkvæmdarvaldinu. Hefur Alþingi kallað eftir sams konar ársfjórðungsuppgjöri frá framkvæmdarvaldinu vegna reksturs ríkissjóðs til að geta gripið í taumana ef ekki er farið eftir fjárlögum, ef ekki er farið eftir því sem fram hefur verið sett? Nei. Það kann að vera að það eigi að kalla eftir því en það hefur ekki verið gert hingað til. Mér er oft tíðrætt um í þessum ræðustól það ósamræmi sem ríkir á Alþingi gagnvart þeim sem eru fyrir utan og þeir sem eru kannski fyrir innan. Við setjum lög á Alþingi sem eiga að snerta þá sem eru fyrir utan, eins og í þessu tilviki sveitarfélögin, en við köllum ekki sem þingmenn eftir sams konar eftirliti með framkvæmdarvaldinu. Það er engin nefnd sem getur gengið í það. Ríkisendurskoðun getur gengið að því og komið með ábendingar til framkvæmdarvaldsins vegna einstakra stofnana sem fara fram úr, en hvað er gert með það? Lítið sem ekkert, þetta eru orð á blaði.

Ekki má skilja orð mín svo að ég taki vanda sveitarfélaga eins og hann er í dag og hefur verið mörg undanfarin ár af einhverri léttúð. Því fer víðs fjarri. Mörg sveitarfélög og sjálfsagt flest sveitarfélög þurfa verulega að taka á sínum málum vegna þess að þau hafa með einum eða öðrum hætti farið í offjárfestingar. Þau hafa eytt umfram gjöld og standa núna frammi fyrir gífurlegum vanda og geta jafnvel ekki og hafa ekki tekjur til að sinna þeirri lögbundnu þjónustu sem ríkið krefst af sveitarfélögum. Vissulega er þetta alvarleg staða margra sveitarfélaga. Ég er ekki að lasta frumvarpið með því að tíunda það sem ég hef sagt hér og nú en mér finnst að gæta þurfi samræmis. Sveitarfélagið er eitt stjórnsýslustig, ríkið er annað. Ríkið sjálft verður líka að fara eftir þeim reglum sem settar eru, framkvæmdarvaldið verður að fara eftir þeim reglum sem birtast í fjárlögum og stofnanir ríkisins að fara eftir þeim reglum sem birtast í fjárlögum en keyra ekki endalaust fram úr og kalla síðan á aukin aukið fjármagn síðar á árinu. Ef við ætlum að gera þessa kröfu til sveitarfélaganna skulum við þingmenn vera sjálfum okkur samkvæm og gera áþekkar kröfur á framkvæmdarvaldið, áþekkar kröfur á það að fjárlögum sé fylgt og að ríkið geti staðið undir því sem það segir þegar lagt er upp með fjárlögin, að fjárlögin séu lög en ekki einhver heimild sem við ætlum að standa við eða ætlum ekki að standa við. Þetta eru lög og það á að fara eftir þeim á nákvæmlega sama hátt og fjárhagsáætlanir sveitarfélaganna eru heimildir stofnananna til að fara eftir en ekki til blása út og suður eftir því hvað hverja stofnun langar til hverju sinni. Gætum samræmis í því þegar við förum yfir stöðu sveitarfélaganna og hvernig við viljum veita sveitarfélögunum aðhald. Það er sjálfsagt nauðsynlegt að veita því stjórnsýslustigi aðhald eins og nauðsynlegt er fyrir framkvæmdarvaldið að fá aðhald löggjafarvaldsins og framkvæmdarvaldinu og fjárlagavaldinu að fylgja eftir og veita aðhald þeim stofnunum sem fjárlögin ná til. Við stöndum frammi fyrir vanda núna, ekki nýjum vanda í sjálfu sér heldur verri en hann hefur oft verið áður, en sveitarfélögin hafa oft staðið frammi fyrir vanda í sínum rekstri og þurft að skoða sín mál með öðrum hætti en ríkinu hefur nokkurn tíma verið ætlað að gera. Gætum samræmis í því þegar við setjum lög að það bitni ekki á einum en aðrir hafi frítt spil.

Mörg sveitarfélög eru vel rekin og hafa haldið vel utan um sína lögbundnu þjónustu en það hefur skort á ýmsum stöðum. Þegar menn hafa verið búnir að setja fjármagn í lögbundna þjónustu og hafa hugsanlega átt eitthvað eftir og séð fram á auknar tekjur hafa mörg sveitarfélög ráðist í framkvæmdir sem talið var á þeim tíma að þau gætu staðið undir en ljóst er í æðimörgum sveitarfélögum að ekki er hægt að standa undir. Það eru hugsanlega byggingar sem eiga ekkert skylt við hina lögbundnu þjónustu sem sveitarfélaginu er skylt að veita. Það verður líka að hafa í huga þegar verið er að skoða með hvaða hætti við ætlum að fara í eftirlit með sveitarfélögum að því sé þá fylgt eftir að byggingar og annað sem er bundið í hinni lögbundnu þjónustu sé í lagi en menn þurfi að gæta sín í öðru. Í raun ætti ekki að vera jafnmikill munur og er á þeim tveim stjórnsýslustigum sem eru hér á landi, sveitarfélögum og ríkinu. Þetta er nákvæmlega það sama. Þau þurfa tekjur og það eru útgjöld, þau ætla að verja grunnþjónustuna og það eru skuldir. Við köllum það í ríkisútgjöldunum t.d. að við ætlum að ná frumjöfnuði á einhverjum árum sem er jöfnuður án fjármagnstekna og svo ætlum við að ná heildarjöfnuði einhvern tíma síðar. Sveitarfélögin eru líka að tala um þetta þó að þau noti önnur orð. Þau ætla sér að rekstur A-hluta standi undir sér en rekstur B-hluta fyrirtækjanna er með öðrum hætti vegna þess að fjármagnstekjur og fjármagnsgjöld lenda frekar á þeim þætti framkvæmdanna en almennum rekstri. Þetta er ekki svo ólíkt en okkur hættir til að mínu mati að líta á þetta sem tvö algerlega ólík stjórnsýslustig. Þau eru það ekki. Verum sjálfum okkur samkvæm þegar við setjum lög sem eiga að skikka annað stjórnsýslustigið til að gæta sín í fjármálum en sleppir hinu stjórnsýslustiginu sem er þó eins og málum er háttað í dag svona ívið hærra sett, því að ekki standa þau algerlega jöfn, en sleppur oftar en ekki bæði í útgjöldum og í þenslu án þess að Alþingi Íslendinga veiti því tilhlýðilegt aðhald.