138. löggjafarþing — 92. fundur,  16. mars 2010.

störf þingsins.

[13:56]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að taka undir ræðu hv. þm. Björgvins G. Sigurðssonar sem hann flutti hér áðan. Það er áhyggjuefni að lífeyrissjóðirnir virðast ekki vera tilbúnir til að taka á með ríkisvaldinu og þingheimi og þeim sem eru í atvinnulífinu að reyna að koma málunum af stað. Við verðum bara að viðurkenna að menn eru vitanlega að reyna að gera sitt besta í því en einhvers staðar eru tappar. Ef þeir eru hjá lífeyrissjóðunum þarf að taka þá aðeins fyrir í þinginu og spyrja þá út í hvort svo sé virkilega.

Annað sem mig langar til að koma á framfæri, virðulegi forseti, er að ég vil þakka fyrir þá umræðu sem hér hefur orðið, ekki síst af hálfu stjórnarliða varðandi mikilvægi þess að leiðrétta þær skuldir sem eru á heimilunum. Þetta er svolítið breyttur tónn og honum ber að fagna. Ef við náum saman um leiðir í þessu ættum við að setjast niður sem allra fyrst til að gá hvort við getum ekki náð saman um einhverja lausn sem allir geta sætt sig við, sem hjálpar þá heimilunum og er í því falin að færa niður þau lán sem á þeim hvíla.

Annað sem mig langar að nefna, frú forseti, er að hingað hafa komið sérfræðingar eða álitsgjafar undanfarið sem eru sérfróðir á sínu sviði. Þeir hafa bent á hvaða mistök ríkisvaldið gerir hugsanlega. Nú síðast á sunnudaginn var Kanadamaður, sem ég man ekki reyndar hvað heitir en það skiptir ekki öllu, í Silfri Egils sem talaði um hættulega stefnu í skuldasöfnun ríkisins. Hvernig var sá ágæti maður afgreiddur? Hann var afgreiddur með því að hann væri að rugla eða þá að hann væri að að reyna að sækja um vinnu. Það er vitanlega með ólíkindum og það er áhyggjuefni að þetta minnir á viðbrögð ríkisstjórnar Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks haustið 2008 þegar sagt var við þá menn sem komu hér og vöruðu við, að þeir væru úti á túni. Þetta eru sömu viðbrögðin. (Forseti hringir.) Ég held að núverandi ríkisstjórn ætti aðeins að horfa til baka, aldrei þessu vant.