138. löggjafarþing — 97. fundur,  22. mars 2010.

stjórn fiskveiða.

174. mál
[18:11]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það er alveg magnað að upplifa hvað margir stjórnarþingmenn tala af mikilli vanþekkingu um þetta mál, opinbera hana hér og reyna að gera að einhverri grýlu í þessu máli Landssamband íslenskra útvegsmanna sem hafi slegið á útrétta sáttarhönd. Þetta mál er fyrst og fremst aðför að smábátasjómönnum, þeim sem eru í þeim útgerðum, vegna þess að það eru fyrst og fremst þær útgerðir sem stunda að mestu leyti skötuselsveiðar. Það vita menn.

Hvað er verið að gera hér? Það er ekkert annað en eignaupptaka í gangi. Þetta fólk hefur spilað algjörlega eftir settum leikreglum. Það hefur keypt sínar aflaheimildir sem ríkið ætlar nú að hirða af því og selja á markað, það er staðreynd, og skilja þessa menn eftir með skuldirnar (Gripið fram í.) sem þeir stofnuðu til. Það er ekkert annað í gangi. Og hvernig ætla hv. þingmenn, þeir fáu reyndar sem eru í salnum — það vekur athygli, virðulegi forseti, að hér eru 4–5 þingmenn Vinstri grænna í salnum, að ráðherra meðtöldum, af 14 þingmönnum — að geta réttlætt 80% afla umfram ráðgjöf? (Gripið fram í.) Er það í nafni náttúruverndar? (Forseti hringir.) Mundu þeir styðja það að þorskkvótinn yrði færður upp í 270.000 tonn ef sama reglan yrði notuð? Ég fullyrði að hagsmunaaðilar í sjávarútvegi hefðu (Forseti hringir.) þá líka reynt að grípa fram fyrir hendurnar á þessari ríkisstjórn.