138. löggjafarþing — 97. fundur,  22. mars 2010.

stjórn fiskveiða.

174. mál
[18:46]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Jón Bjarnason) (Vg):

Frú forseti. Ljóst er að í umræðunni kristallast reginmunur á milli annars vegar sérstaklega Sjálfstæðisflokksins og hins vegar Vinstri grænna og Samfylkingarinnar varðandi stefnu í sjávarútvegsmálum og hefur gert það um langt árabil. Það kemur í sjálfu sér ekkert á óvart í þeim efnum. (Gripið fram í.) Hitt er svo að frumvarpið sem hér er lögfest eru ákveðin skref og þau eru mjög góð. Ég vil leggja áherslu á að þeim hópi sem skipaður var af ráðherra til endurskoðunar á lögum um stjórn fiskveiða er ætlað að taka fyrir langtímasjónarmið í þeim efnum. Það sem hér er verið að gera eru í sjálfu sér bráðabirgðaaðgerðir til skamms tíma, það sem hér er mestur ágreiningur um. (Forseti hringir.) Komist endurskoðunarhópurinn síðan að annarri niðurstöðu og verði flutt frumvarp til laga sem taki á þeim atriðum og breyti þeim á annan hátt en hér er, þá að (Forseti hringir.) sjálfsögðu gerist það.

Frú forseti. Ég fagna þessari niðurstöðu. Þetta er góður áfangi í þeirri vegferð sem við erum í. Ég segi já.