138. löggjafarþing — 98. fundur,  23. mars 2010.

tilkynning um dagskrá.

[13:31]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Um kl. fjögur í dag fer fram umræða utan dagskrár um stöðugleikasáttmálann. Málshefjandi er hv. þm. Unnur Brá Konráðsdóttir. Forsætisráðherra Jóhanna Sigurðardóttir verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.