störf þingsins.
Virðulegi forseti. Það er ástæða til að vekja athygli á því agaða þrekvirki sem almannavarnayfirvöld í Rangárþingi hafa unnið á síðustu sólarhringum eftir að gos hófst í Eyjafjallajökli um miðnætti aðfaranótt sunnudags um síðustu helgi. Þá hófst mjög mikil viðbragðsáætlun og rýmingaráætlun sem hefur verið mikilfenglegt að fylgjast með hvernig hefur gengið eftir. Núna í morgun funduðu þingmenn Suðurkjördæmis með almannavörnum í Rangárþingi sem hafa undir forustu Kjartans Þorkelssonar sýslumanns unnið þar einstakt starf sem hefur verið mjög merkilegt að fylgjast með á síðustu dögum og vikum, hvernig allt kerfið var ræst út, gert ráð fyrir því versta, svæðið rýmt á tveimur klukkustundum og síðan var viðbúnaðarstigið lækkað og lagað að aðstæðum eftir að upplýsingar bárust og raunverulegar aðstæður vegna gossins lágu fyrir. Sú rýmingaráætlun sem fór í gang var með ólíkindum fumlaus og yfirveguð og gekk alveg sérstaklega vel. Það eina sem yfirmenn almannavarna upplýstu okkur þingmenn Suðurkjördæmis um í morgun að hefði ekki gengið eftir eins og vænst var var símboðun, það væru einu veikleikarnir í kerfinu og þar vantaði betra kerfi sem mundi kosta 100 millj. kr. að koma upp fyrir landið allt og næði þá til allra skráðra og óskráðra númera, ferðamanna og allra annarra sem eru með síma á þeim svæðum sem þarf að rýma.
Hér er um að ræða mjög alvarlegt mál ef hamfarahlaup úr Kötlu gengi eftir. Sumir hafa talað um að gos úr Eyjafjallajökli sé hvellhetta fyrir Kötlugos. Nú hefur verið farið í gegnum hina ýtrustu viðbragðsáætlun sem gekk mjög vel og það var aðdáunarvert að fylgjast með því hvernig almannavarnayfirvöld hafa staðið að undirbúningi á síðustu árum og missirum eins og núna kemur fram við þær (Forseti hringir.) alvarlegu aðstæður sem geta skapast þegar slíkt gerist.