störf þingsins.
Virðulegi forseti. Aðeins fyrst að skötuselsmálinu, það sýnir hvað Samfylkingin hefur litla þekkingu á sjávarútvegsgeiranum, þeir eru að tóna þetta mál niður. Þeir tala um nokkur hundruð tonn. Í frumvarpinu stendur 2.000 tonn og það er meira en nokkur hundruð tonn, og það er vegið að grundvallarforsendum fiskveiðistjórnarkerfisins í þessu frumvarpi. Þess vegna er þessi ágreiningur.
Það er magnað að heyra hv. þm. Atla Gíslason ræða málefni ECA á þessum vettvangi. Það er ljóst að þetta mál hefur verið unnið með samþykki og vitneskju ríkisstjórnarinnar og af hennar hálfu. Þeir aðilar sem þarna eru að byggja upp fyrirhugaða starfsemi hafa verið að því með velvilja ríkisstjórnarinnar. (Gripið fram í: Það er rangt.) Það er ekki rangt, það er hárrétt. Til stofnana ríkisins hafa verið ráðnir sérfræðingar til að laga íslenskar reglur að því að geta gefið út íslensk flugrekstrarskírteini fyrir þotur þessara aðila. Það er alveg magnað þegar þetta kemur síðan upp í pólitíkinni að þá telja menn að við sem erum fylgjendur þessa séum að slá pólitískar keilur á meðan það eruð þið sem standið gegn þessu sem reynið það. Það er mikil hræsni í þessari umræðu.
Hæstv. fjármálaráðherra kom inn á þetta í útvarpsviðtali á síðasta ári þar sem hann sagðist ekki hafa athugasemdir við þessa starfsemi af því að hann teldi hana ekki snúa það mikið að hernaði. Hér er um vopnlausar vélar að ræða og hér er ekki um að ræða starfsmenn sem bera vopn. Eða telja einhverjir að íslenskir flugvirkjar og íslenskir starfsmenn muni vera með vopnaburð eða taka þátt í herþjónustu af einhverju tagi í kringum þessa starfsemi? Svo er ekki. En að þetta sé andstætt samstarfssáttmála ríkisstjórnarinnar er ekki rétt. Það er greinilegt að þeir háu herrar sem þar sitja telja ekki svo vera. Þeir hafa staðið í þessum viðræðum, þeir hafa tekið þátt í þessu. Þetta fyrirtæki er farið að kynna málið vegna þess hversu langt það er komið, m.a. á heimasíðu sinni, og allir sem vilja geta kynnt sér starfsemi þess, hún er ekkert leyndarmál. Þetta er ekkert leyndarmál af hálfu þessa fyrirtækis. (Forseti hringir.) Þetta hefur greinilega verið eitthvert leyndarmál innan ríkisstjórnarflokkanna og er gríðarlega viðkvæmt en það kemur enn og aftur að því þegar á að fara að ræða hér atvinnumál að það stoppar á ríkisstjórnarborðinu. (Forseti hringir.) Þessi ríkisstjórn kemst ekkert áfram með atvinnumál í þessu landi, virðulegi forseti, hún verður að fara frá.