stjórnarskipunarlög.
Virðulegur forseti. Sú er hér stendur er einn flutningsmanna þessa frumvarps. Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að við ættum að stíga það skref að gera landið að einu kjördæmi. Ég tel að kostirnir við þá breytingu séu mun fleiri en gallarnir, auðvitað eru einhverjir gallar á henni en kostirnir eru afgerandi fleiri.
Á bls. 2 í greinargerðinni kemur fram hvaða kostir eru augljósir. Þar er tínt til að það verður fullkominn jöfnuður milli kjósenda og misvægi atkvæða hverfur, þ.e. einn maður – eitt atkvæði. Í dag getur einn maður verið með hálft atkvæði, af því að ef meira misvægi er en að menn hafi hálft atkvæði á við annan mann á að færa þingmann á milli til þess að jafna þetta betur. Við þolum í núverandi kerfi að einstaka atkvæði vegi bara hálft og það má gagnrýna það, virðulegur forseti.
Hér kemur líka fram að stjórnmálaflokkar fá þann þingmannafjölda sem atkvæði þeim greidd segja til um. Þetta er reyndar auðvitað hægt að tryggja með öðrum hætti. Í dag er nokkuð vel tryggt að flokkar fá þann þingmannafjölda sem atkvæði þeirra segja til um.
Í þriðja lagi er sagt að með þessari breytingu, þ.e. að þingmenn verði kjörnir fyrir allt landið, muni þeir hafa heildarhagsmuni að leiðarljósi í störfum sínum en ekki þröng kjördæmasjónarmið. Það verður að viðurkennast, virðulegur forseti, að í því kerfi sem ríkir hér, og hefur ríkt í áratugi, freistast hv. þingmenn til þess að pota sínum kjördæmum að. Það er kannski ekkert skrýtið. Þeir eru kjörnir þar, eru með hugann þar og vilja auðvitað þjóna sínum umbjóðendum. Því er innifalið í kerfinu að af því að þingmenn vilja ná endurkjöri eru þeir hvattir til þess að vinna fyrir sitt kjördæmi og missa kannski sjónar á heildarhagsmunum fyrir vikið. Sú er hér stendur hefur nokkra reynslu af því og man eftir ákveðnum tilvikum hér í „denn“, það þarf ekki að fara mjög langt aftur, þar sem gífurlegur þrýstingur var oft á stjórnmálamenn frá kjördæmunum að fara í ákveðin mál og komast að ákveðinni niðurstöðu. Það mátti mjög gagnrýna aðferðafræðina í því. Þingmenn eiga oft nánast við ofurefli að etja. Þá nefni ég að til eru dæmi þess að sveitarstjórnarmenn taki sig saman í kjördæmum til þess að ná einhverju fram og þá er mjög erfitt fyrir þingmann að standa gegn því, þótt heildarhagsmunir segi kannski eitthvað allt annað. Þetta ber að hafa í huga, að kerfið hvetur til þess að menn skoði kjördæmahagsmuni kannski meira en góðu hófi gegnir.
Í fjórða lagi er tínt til að kosningakerfið yrði einfalt og auðskilið með þessari breytingu og það er alveg rétt. Það skilja þetta allir. Landið er eitt kjördæmi, einn maður – eitt atkvæði o.s.frv., þetta er eins einfalt og hægt er að hafa það.
Ég vil líka koma því á framfæri að við hér í norðvestri ættum að skoða hvað gengur og gerist hjá nágrönnum okkar. Bæði á Grænlandi og í Færeyjum er þetta kerfi nú þegar við lýði, þ.e. Grænland er eitt kjördæmi og Færeyjar eru eitt kjördæmi. Ég fór í útvarpsviðtal í síðustu viku hjá Heru Simonsen í færeyska útvarpinu til þess að ræða einmitt um þetta, að núna lægi frammi tillaga á Alþingi Íslendinga um að gera Ísland að einu kjördæmi. Færeyingar hafa áhuga á að fylgjast með þessum umræðum sem hér fara fram af því að þeir hafa nýlega gengið í gegnum nákvæmlega sömu umræðu. Þar í landi er eitt kjördæmi og líka á Grænlandi. Ísland er miklu minna en Grænland og byggðin þar er miklu dreifðari en hér. Fyrst þeir geta þetta ættum við að geta það líka.
Í þessari umræðu er líka stundum spurt hvort þetta sé ekki rangt skref að taka því kannski kæmu allir þingmennirnir frá höfuðborgarsvæðinu. Hér búa um 70% þjóðarinnar og því má kannski segja að það væri eðlilegt að 70% þingmanna kæmu héðan, ef líta ætti á það í ákveðnu jafnvægi, en ég óttast ekki að of mikill fjöldi þingmanna komi af þessu svæði. Flokkarnir mundu allir líka vilja fá atkvæði úti á landi þannig að það yrðu frambjóðendur frá öllum landsvæðum. Síðan er það auðvitað fólksins að velja þá sem það treystir og þá sem það telur að séu hæfastir og best til þess fallnir að leiða þjóð sína áfram. Við verðum því bara að treysta á að kjósendur taki réttar ákvarðanir í þessu tilliti.
Ég vil taka undir það sem kom fram áðan hjá hv. þm. Björgvini G. Sigurðssyni, sem er 1. flutningsmaður þessa máls, að það eru mun meiri líkur en minni á því að með því að samþykkja að landið verði eitt kjördæmi farnist byggðunum vel. Það er mín bjargfasta trú að ef þingmenn eru valdir af öllu landinu og hafa landið allt sem bakland séu þeir miklu líklegri til þess að horfa á heildarhagsmuni og það eru ótvíræðir hagsmunir fólgnir í því að hafa byggð um landið. Það er ekki akkur fyrir neinn að hafa allan mannfjöldann í höfuðborginni og næsta nágrenni. Ég tel að með því að landið yrði eitt kjördæmi mundu þingmenn allir, líka þeir sem eru búsettir á höfuðborgarsvæðinu, líta einnig virkilega til með landsbyggðinni. Ég tel því að það væri öllum til góðs að stíga þetta skref, virðulegur forseti.
Fram kom hjá hv. þm. Pétri H. Blöndal að það væri kannski betra að fara í hina áttina, þ.e. að fjölga kjördæmunum. Við erum nýbúin að fækka þeim. Við vorum með átta kjördæmi fyrir stuttu síðan og fækkuðum í sex. Þá var Reykjavík skipt upp í tvö kjördæmi, Reykjavík norður og Reykjavík suður — einhverjum mjög snjöllum datt í hug að það væri kannski hægt að skipta þessu í Reykjavík neðri hæðir og Reykjavík efri hæðir í húsum — en ég tel að við eigum ekki að minnka kjördæmin. Við tókum rétt skref þegar við ákváðum að stækka kjördæmin og fækka þeim en það verður að viðurkennast að í hvert sinn sem við höfum rætt þessi mál og gert breytingar á kjördæmaskipan hafa þingmenn fallið í þá gryfju að hugsa of þröngt um eigin hagsmuni. Það fara allir að reikna sjálfa sig út, hvað verður um viðkomandi í næstu kosningum o.s.frv. Þegar gerðar hafa verið breytingar á kosningalöggjöfinni hefur það því oft leitt til þess að við höfum fjölgað þingmönnum til þess að allir geti reiknað sig inn í næstu kosningum þar á eftir. Síðan hafa menn líka kannski viljað fá meiri aðstoð við að sinna kjördæmum sem eru stærri og það er svo sem skiljanlegt en ég tel að við eigum að geta gert þessa breytingu án þess að fjölga þingmönnum. Ég sé ekki að það sé nein þörf á því út af þessari breytingu, þ.e. gera landið að einu kjördæmi.
Ég vona svo sannarlega að þingmenn líti á þetta mál í stóru samhengi, ýti því ekki frá sér á grundvelli þröngra sjónarmiða heldur skoði hvað er best fyrir almannahagsmuni. Ég er sammála því sem kom fram hjá 1. flutningsmanni, hv. þm. Björgvini G. Sigurðssyni, að landið verður gert að einu kjördæmi. Ég hef þá trú, það er bara spurning hvenær það verður gert. Ég held að Íslendingar muni almennt fleiri og fleiri sjá í framtíðinni að það sé skynsamlegt að gera þetta. Þetta er miklu einfaldara, einn maður – eitt atkvæði og að þingmenn hafi meiri tilhneigingu til þess að vinna fyrir landið allt í heild en ekki fyrir þrönga hagsmuni eigin kjördæmis.
Ég tel hins vegar ekki að þetta mál fari hratt í gegn af því að þetta er breyting á stjórnarskrá. Ef það verður afgreitt þarf að kjósa til nýs Alþingis á milli og taka það síðan í gegn á nýju þingi til að þetta verði að veruleika. Ég á því frekar von á að þetta verði bara skoðað mjög vandlega og undirbúið núna í nefnd og síðan þegar rétti tíminn kemur, hvort sem það verður fyrir næstu kosningar eða síðar, verður þetta vonandi afgreitt. Ef það verður stjórnlagaþing, sem ég vona svo sannarlega að verði — við framsóknarmenn höfum sérstaklega ályktað um það og reyndar líka um persónuval. Það er ágætt að koma því að af því að menn voru að tala um eitthvert agalegt flokksræði. Ef við berum gæfu til þess að vera með aukið persónuval á listanum ef landið verður eitt kjördæmi þarf ekki að hafa miklar áhyggjur af flokksræðinu að mínu mati. Ef það verður stjórnlagaþing er það alla vega von mín að þaðan komi tillaga um að landið verði gert að einu kjördæmi og þá væri hægt að afgreiða það að slíku þingi gengnu, ef það yrði niðurstaðan.
Virðulegur forseti. Ég styð þetta mál. Ég tel að það sé mikið framfaramál og í því séu fólgnir miklu fleiri jákvæðir hlutir en neikvæðir. Satt best að segja sé ég ekki neikvæðu hliðarnar á þessu. Ég skil þó að ýmsir aðilar á landsbyggðinni gætu óttast að missa alla þingmenn hingað til höfuðborgarsvæðisins en ég hef ekki áhyggjur af því að það verði reyndin, alls ekki.