138. löggjafarþing — 98. fundur,  23. mars 2010.

stöðugleikasáttmálinn.

[16:28]
Horfa

Þór Saari (Hr):

Virðulegur forseti. Við ræðum stöðugleikasáttmála, meintan stöðugleikasáttmála kannski. Þetta er mikilvægt mál. Það sem skín þó í gegn og er mikilvægt að hafa í huga er að títtnefndur stöðugleikasáttmáli er ekki þjóðarsátt. Þess vegna ganga hlutirnir ekki upp eins og þeir ættu að gera. Það samráð sem hefur verið í gangi er samráð æðstu valdhafa, ríkisvaldsins, Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands sem að mínu mati véla um framtíð almennings án aðkomu hins almenna borgara. Forusta ASÍ er t.d. ekki í forsvari fyrir almennt launafólk, heldur fyrir fjárhagslega hagsmuni lífeyrissjóða. Það væri miklu nær að velja til samstarfs og samráðs almenna félagsmenn úr röðum Alþýðusambandsins einfaldlega með slembiúrtaki til að fá fram sjónarmið almennings. Að óbreyttu mun efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar og fjármálastefna hæstv. fjármálaráðherra ekki ganga upp. Það mun ekki ganga upp að skera niður í útgjöldum ríkissjóðs um 50–60 milljarða kr. án stórfelldra skattahækkana.

Það er nauðsyn á þjóðarsátt og þverpólitískri sátt í þinginu um þau brýnu mál sem skipta almenning og fyrirtæki mestu máli. Það verður að skipta um gír og skipta um stefnu og leita inn á við í þingið til að ná meiri sátt um mál. Á vissum stöðum er vinnan þegar hafin án aðkomu forustumanna stjórnmálaflokkanna. Þverpólitísk vinna er hafin í efnahags- og skattanefnd um að leita úrræða til að ná fram almennum afskriftum á skuldum heimilanna. Það er hafin þverpólitísk vinna meðal formanna þingflokka allra flokka sem sæti eiga á þingi um að skilgreina þau brýnustu mál sem hægt er að ná samstöðu um. Þetta eru gríðarlega mikilvæg skref og ég sem þingmaður og almennur borgari í þessu landi krefst þess einfaldlega af forsvarsmönnum ríkisstjórnarinnar (Forseti hringir.) að þeir lýsi yfir stuðningi við þá vinnu.