dagskrár- og kvikmyndagerð hjá Ríkisútvarpinu.
Frú forseti. Ég leyfi mér að fagna þessari umræðu og nú er svo komið að ég tek undir hvert einasta orð sem hv. Birkir Jón Jónsson hafði fram að færa úr þessari pontu áðan. Það er mjög mikilvægt nú um stundir að átta sig á hvert forgangsverkefni ríkisútvarps eigi að vera á tímum sem þessum. Að mínu viti er það mjög skýrt, það er fréttaþjónusta í víðustu merkingu þess orðs og það eru kaup og framleiðsla á innlendu sjónvarpsefni, heimildarmyndum og öðru slíku efni sem lýtur að menningu og upplýstu samfélagi. Þetta er gríðarlega mikilvægt og ég held að menntamálaráðherra eigi einmitt að hafa í huga, rétt eins og aðrir ráðherrar á öðrum stofnunum, hver forgangurinn á að vera og hvað við getum best gert við þær aðstæður sem nú ríkja.
Þess vegna langar mig að spyrja í lok míns máls: Hyggst ráðherra breyta fyrirkomulagi Ríkisútvarpsins? Mun það áfram undir hennar stjórn heita ohf. í endanum?