starfsstöðvar Ríkisútvarpsins.
Frú forseti. Ríkisútvarpið er okkur öllum mikilvægt, vil ég trúa, og starfsemi þess er fólki á höfuðborgarsvæðinu, sem og á landsbyggðinni, ákaflega mikilvæg. Sá sem hér stendur ólst upp frá unga aldri við að hlusta á svæðisútvarp Norðurlands. Nú hafa miklar breytingar verið gerðar á starfsstöðvum Ríkisútvarpsins vítt og breitt um landið. Starfsfólki hefur verið sagt upp og dregið hefur verið úr útsendingum og þær lagðar af sem við höfum þekkt í gegnum tíðina sem svæðisbundnar útsendingar. Nú ætla ég ekki að draga fjöður yfir að við þurfum að draga saman í rekstri Ríkisútvarpsins, eins og kom fram í umræðunni áðan, en hverjar eiga áherslurnar að vera í þeim efnum? Það hefur m.a. komið fram að það húsnæði sem Ríkisútvarpið býr við er stofnuninni gríðarlega dýrt og kostnaðarsamt þannig að fjármunir fara að allt of miklu leyti í rekstur á því óhagkvæma húsnæði, fjármunir sem mætti hugsanlega verja á annan hátt, til að mynda í að efla svæðistengdar útsendingar.
Það stóð heldur ekki á viðbrögðunum þegar þessi ákvörðun Ríkisútvarpsins var kynnt. Ef við byrjum á Austurlandi var boðað til mjög fjölmennra mótmæla þar sem Austfirðingar komu saman og mótmæltu uppsögnum þar og því að verið væri að leggja svæðisútvarp Austurlands niður eða útsendingar þaðan. Við höfum líka mörg dæmi af Norðurlandi, m.a. frá stjórn Verkalýðsfélags Húsavíkur sem samþykkti harðorða ályktun vegna þess samdráttar sem varð á svæðisútvarpinu á Akureyri. Að vestan höfum við einnig álit sveitarstjórna og samtaka sveitarfélaga þar sem menn harma þessa ákvörðun.
Ég velti því fyrir mér, í ljósi þess að hafa heyrt viðbrögð frá fólki vítt og breitt af landinu sem saknar þessara tíma þegar fólk hlustaði á staðbundnar fréttir sem oft ná ekki inn í kvöldfréttir Ríkisútvarpsins, hvort það sé ekki ástæða fyrir okkur hér á þinginu að ræða þessi mál og taka þau til skoðunar. Það er mikil óánægja með þetta fyrirkomulag eins og það er. Nú er náttúrlega verið að móta það en ég sé mikið eftir því að geta ekki fylgst með fréttum úr minni heimabyggð, líka að vestan og austan, vegna þess að þetta voru öðruvísi fréttir en við heyrum í fréttatíma útvarpsins.
Þess vegna vil ég heyra álit hæstv. ráðherra og ég vona að þeir þingmenn sem eru í salnum láti sig þetta málefni varða líka því að við erum fulltrúar almennings á þessum svæðum og almenningur hefur látið í sér heyra, bæði með því að senda okkur tölvupósta og hringja í okkur og láta í ljósi mikla óánægju með það fyrirkomulag sem nú ríkir. Við verðum að hlusta. Við eigum að hlusta á fólkið í landinu. Ég trúi ekki að það sé meiri hluti fyrir því „ástandi“ sem blasir við okkur í dag. Ég vil standa vörð um staðbundnar fréttir á vegum Ríkisútvarpsins. Allur búnaður er þar til staðar í dag, það þarf ekki að fjárfesta í honum. Þetta er gríðarlega mikilvægt mál fyrir samfélagsvitund íbúanna á viðkomandi svæðum. Þess vegna hvet ég hæstv. ráðherra og spyr hana um leið hvort hún ætli að standa vörð um starfsstöðvar Ríkisútvarpsins á landsbyggðinni og vonandi að koma því á (Forseti hringir.) að menn flytji á ný staðbundnar og skemmtilegar fréttir.