138. löggjafarþing — 99. fundur,  24. mars 2010.

starfsstöðvar Ríkisútvarpsins.

362. mál
[14:30]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu. Ég er eindreginn stuðningsmaður svæðisútsendinga og starfsstöðva út um land. Ég tel að þær hafi þjónað miklum tilgangi og hafi eflt samstöðu innan svæðanna um þau málefni sem á brenna hverju sinni. Á þeim stutta reynslutíma sem hefur verið af nýju fyrirkomulagi að segja fréttir af landsbyggðinni í hádegisútvarpinu hefur mér frekar fundist það þannig hugsað að verið sé að segja höfuðborgarbúum fréttir af landsbyggðinni en að það nýtist svæðunum sem slíkum innbyrðis. Mér hefur fundist menningarhlutverk svæðisstöðvanna og lýðræðishlutverk þeirra hverju sinni, að taka á málefnum, skipta máli. Þar sem prentmiðlar eru ekki margir á landsbyggðinni hefur þetta lýðræðishlutverk líka verið sterkt hjá svæðisstöðvunum og allur fréttaflutningur. Mér finnst mikilvægt að efla svæðin innbyrðis og gera fólk stolt af því sem er að gerast á hverju svæði, einhverju sem ratar kannski ekki í hádegisfréttirnar. (Forseti hringir.) Það þurfum við að efla og þess vegna mun ég berjast fyrir áframhaldandi svæðisstöðvum.