138. löggjafarþing — 100. fundur,  25. mars 2010.

starfsemi ECA.

[10:32]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil gera að umtalsefni málefni fyrirtækisins ECA sem hefur hugmyndir um að hefja starfsemi á Keflavíkurflugvelli. Fulltrúar fyrirtækisins komu fyrst til Íslands á vormánuðum 2009 í því skyni að kanna möguleika á að reka hér á landi viðhalds- og þjálfunarfyrirtæki. Um nokkurt skeið hafði þá verið leitað að góðri staðsetningu fyrir starfsemina. Í fyrstu var leitað til Kanada en þar var sambærileg starfsemi fyrir hendi og ekki grundvöllur fyrir að staðsetja annað fyrirtæki í sama rekstri þar.

Heimamenn á Íslandi tóku þessari fyrirspurn vel. Það var talað við embættismenn og ráðherra í ríkisstjórninni og fóru þær viðræður vel. Hefur verið þverpólitísk samstaða heimamanna um verkefnið og unnið í góðri samvinnu við ráðuneytisfólk sem veitt hefur verkefninu brautargengi. Það hefur verið þverpólitísk samstaða meðal þingmanna og stjórnmálaflokka á Suðurnesjum um þetta mál.

Markmið ECA var og er enn að reka hér á landi viðhaldsstöð fyrir flugvélar sínar og þjálfun flugmanna. Fyrirtækið hefur samið um kaup á vopnlausum þotum sem fyrirhugað er að hafi heimastöð á Íslandi og fari þjálfun flugmanna fram hér á landi. Auk þess er gert ráð fyrir að öll viðhaldsstarfsemi vélanna verði staðsett hér. Stærstur hluti starfsmanna eru almennir starfsmenn, flugvirkjar og tæknimenn auk fólks sem gegnir hefðbundnum skrifstofustörfum. Gert er ráð fyrir um 150–200 starfsmönnum auk afleiddra starfa. Þegar hefur verið haft samband við Félag flugvirkja hér á landi og er mikill áhugi hjá þeim fyrir verkefninu. Flugvélarnar eru síðan leigðar út til aðildarþjóða NATO þar sem þær eru eingöngu notaðar við þjálfun á flugherjum viðkomandi ríkja. Allar slíkar æfingar munu fara fram í lofthelgi þeirra þjóða sem um ræðir og því aldrei á Íslandi. Vélarnar verða aldrei notaðar í hernaðarlegum tilgangi á Íslandi.

Verkefnið hefur verið kynnt öllum þingmönnum kjördæmisins og m.a. hafa hv. þingmenn Samfylkingarinnar, Björgvin G. Sigurðsson og Róbert Marshall, unnið mikið að þessu máli ásamt fleirum. Verkefnið er á réttri leið, fjármögnun er í eðlilegum farvegi sem og annar undirbúningur. Ég vil því spyrja hæstv. samgönguráðherra í ljósi þeirrar umræðu sem farið hefur fram á þinginu, sérstaklega hjá þingmönnum Vinstri grænna, (Forseti hringir.) um þetta mál, hvort nokkur breyting sé af hálfu ráðuneytisins og hvort ekki sé einhugur í ríkisstjórninni um að þetta mál fái brautargengi, en málið hefur verið rætt og unnið með vitneskju hennar.