138. löggjafarþing — 100. fundur,  25. mars 2010.

sanngirnisbætur.

494. mál
[11:32]
Horfa

Þór Saari (Hr):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum sem falla undir lög nr. 26/2007, en þau lög kveða á um skipan nefndar til að kanna starfsemi vist- og meðferðarheimila fyrir börn, svokallaða Spanó-nefnd.

Frumvarp þetta á rætur að rekja til þess að hið svokallaða Breiðavíkurmál kom fram í dagsljósið í febrúar árið 2007 þegar nokkrir fyrrum vistmenn á Breiðavík stigu fram og sögðu sögu sína af dvölinni þar, sögur sem eru slíkar að mannshugurinn á erfitt með að skilja það í dag sem bjó að baki, bæði þeirri stjórnsýslu sem fór fram á heimilinu, sem var ríkisrekið, og þeirri stjórnsýslu sem átti sér stað í þeim sveitarfélögum sem sendu börn til Breiðavíkur.

Virðulegur forseti. Þar sem ég er persónulega tengdur málinu sem stjórnarmaður í Breiðavíkursamtökunum tel ég rétt að gera stutta grein fyrir þeim tengslum áður en ég held áfram með mál mitt. Í kjölfar umræðunnar sem skapaðist um Breiðavíkurmálið á sínum tíma, umræðu sem fljótlega snerist um hugsanlegar bætur til vistmanna, fékk ég sem hagfræðingur áhuga á málinu út frá fræðilegri nálgun á því hvernig hugsanlega hægt væri að ákvarða bætur í svona flóknum og erfiðum málum. Ég hafði sjálfur numið og búið í Bandaríkjunum í um áratug þar sem menn fengu jafnvel milljón dollara í skaðabætur fyrir að hella sjálfir niður á sig of heitu kaffi. En hér á landi var hefðin kannski sú að hægt var að berja fólk til óbóta og misþyrma því á flestan hugsanlegan máta án þess að fórnarlambið fengi nema einhverjar tugþúsundir eða í besta falli hundruð þúsunda í bætur.

Eftir nokkra yfirlegu komst ég að niðurstöðu varðandi Breiðavík sem mér fannst skynsamleg og vel rökstudd. Ég bar hugmyndir mínar undir stjórnarmenn í samtökunum sem þá voru svo til nýstofnuð og var í framhaldinu beðinn um að taka sæti í nýrri, stækkaðri stjórn samtakanna. Það hefur verið mér mikill heiður að starfa í þessari stjórn og ég met mikils það traust sem Breiðavíkurdrengir hafa sýnt mér, þá sýn sem ég hef fengið inn í þennan málaflokk, og ekki síst met ég mikils að hafa fengið að kynnast þeim mönnum sem voru í Breiðavík.

Virðulegur forseti. Strax frá embættistöku sinni var ljóst að hæstv. forsætisráðherra Jóhanna Sigurðardóttur var ákveðin í að reyna að ljúka máli þessu með sanngirni og sóma og fljótlega steig hún fram og bað Breiðavíkurdrengi fyrir hönd þjóðarinnar afsökunar á því misrétti sem þeir höfðu orðið fyrir. Það var vel gert og mikils metið af þolendum í málinu.

Frumvarpið sjálft tók nokkurn tíma í vinnslu enda um flókið mál að ræða og þvældist það sem vera ber milli embættismanna af mismunandi stigum og gerð. Að endingu tók þó hæstv. forsætisráðherra af skarið sjálf og leysti málið á tveimur dögum. Þess ber að geta að ávallt var haft fullt samráð við Breiðavíkursamtökin og samstarf við forsætisráðuneytið var ætíð gott þó að menn væru ekki alltaf sammála. Sérstaklega ber að þakka framlag Ragnars Aðalsteinssonar hæstaréttarlögmanns sem frá upphafi tók að sér að gæta hagsmuna Breiðavíkurdrengja í málinu án þess nokkurn tíma að minnast á greiðslu fyrir. Forsætisráðuneytið ákvað svo í lokin að taka á sig kostnað hans vegna málsins.

Slík vinnubrögð af hálfu forsætisráðuneytisins og forsætisráðherra sem að ofan greinir eru virðingarverð og ber að þakka þau. Frumvarp þetta skapar umgjörð um greiðslu sanngirnisbóta til handa þolendum á þeim fjölmörgu mismunandi heimilum og stofnunum sem vistuðu börn og falla undir rannsókn svokallaðrar Spanó-nefndar. Gerir frumvarpið ráð fyrir bótum að hámarki 6 millj. kr. til vistmanna á heimilum og stofnunum sem lögin taka til. Bótaupphæðin áætlast af þeim miska sem ætlað er að menn hafi orðið fyrir og í tilfelli Breiðavíkurdrengja má því gera ráð fyrir að flestir þeirra fái hámarksbætur. Það er nýmæli í þessu frumvarpi að bætur til fyrrum vistmanna erfast til barna þeirra sem látnir eru en mjög margir fyrrum vistmanna á Breiðavík eru látnir. Hafa margir þeirra fallið fyrir eigin hendi.

Breiðavíkursamtökin eru sátt við þá niðurstöðu mála sem fram kemur í þessu frumvarpi og á félagsfundi samtakanna fyrir hálfum mánuði var þessum málalokum fagnað. Málið hefur dregist og verið fyrrum vistmönnum úr Breiðavík erfitt en þeir eru ánægðir því að nú sér fyrir endann á því. Hvað bæturnar sjálfar varðar tel ég persónulega að hámarksupphæðina í frumvarpinu ætti frekar að tilgreina sem lágmarksbætur og að hámarksbætur mættu að ósekju, miðað við það misrétti sem þessir menn sættu, vera mun hærri. Ég mun hins vegar ekki gera ágreining um þetta mál heldur einfaldlega velta upp þeirri hugleiðingu minni í allsherjarnefnd og svara spurningum um hana þar enda tel ég tímabært að ákvarðanir almennt um skaða- eða miskabætur taki breytingum. Einnig eru örfá álitamál í greinargerð frumvarpsins sem allsherjarnefnd þarf að skoða vel.

Virðulegur forseti. Fyrir hönd Breiðavíkursamtakanna vil ég þakka hæstv. forsætisráðherra framgöngu hennar í þessu máli. Málalokin eru farsæl, málið var unnið með sanngjörnum hætti og forsætisráðherra er sómi að. Að endingu vil ég ljúka máli mínu með þeirri ósk til þingsins og allsherjarnefndar að frumvarp þetta fái farsæla og hraða afgreiðslu á þeim vettvangi einnig.