sanngirnisbætur.
Frú forseti. Ég þakka hv. formanni allsherjarnefndar fyrir að taka vel í þetta. Ég vil að þetta sé skoðað eins og alltaf, kostir og gallar, og farið í gegnum það hvort þetta gæti verið ákveðinn öryggisventill til að koma í veg fyrir að svona endurtaki sig.
Það sem gerðist á Breiðavíkurheimilinu er miklu meira en bara einhverjar barsmíðar eða slíkt. Það sem gerðist er að þessir drengir flestir hverjir fóru ekkert í langskólanám, þeir byggðu ekki upp sinn æviferil eins og þeir sem stóðu utan við þessi heimili. Þeir voru rændir því líka þannig að þetta er miklu stærra mál og sýnir hvað við þurfum að gæta vel að því afli og þeim völdum sem ríkisvaldið hefur gagnvart einstaklingum. Við þurfum stöðugt að vera á verði til að verja einstaklinginn fyrir ofurvaldi ríkisins. Það hef ég svo sem bent á í mörgum málum, bæði gagnvart skattamálum og öðrum slíkum og það kemur meira að segja dæmi um það hér á eftir, um kyrrsetningar, sem er svipaðs eðlis þar sem ríkisvaldið beitir ofurafli sínu gagnvart einstaklingum og við þingmenn erum kjörnir til þess að standa vörð um það. Við megum ekki láta það henda okkur að eftir 10, 20, 30 eða 50 ár komi fram eitthvað sem er að gerast núna eða sem gerist á morgun.