skuldavandi ungs barnafólks.
Virðulegi forseti. Finnar tala um týnda kynslóð ungs fólks úr kreppunni sem þeir áttu í um 1990. Þegar Færeyingar lentu í sambærilegum vandræðum og Íslendingar glíma við í dag misstu þeir 20% þjóðarinnar úr landi og var ungt barnafólk stór hluti hópsins. Allir eru sammála um að þar sem þessar þjóðir beittu ekki almennum velferðarúrræðum fóru þessir hópar fólks afar illa út úr kreppunni.
Ástæðan fyrir því að ég hef þessa utandagskrárumræðu er að ríkisstjórnin virðist ekki ætla að læra af mistökum nágranna- og frændþjóða okkar. Lítið er um sjáanlegar aðgerðir og hagur þessa fólks versnar dag frá degi. Það er engum blöðum um það að fletta að ungt barnafólk er á meðal þeirra sem veikast standa.
Í upptalningu velferðarvaktarinnar eru viðkvæmar barnafjölskyldur efstar á blaði. Þar er einnig að finna fatlaða, langveika, öryrkja, fátækt aldrað fólk, fólk án atvinnu og þá sem njóta fjárhagsaðstoðar sveitarfélaganna til framfærslu. Flestir þeirra sem stóðu höllum fæti fyrir kreppu standa enn verr í dag.
Þessi vandi er ekki heimatilbúinn. Ungar fjölskyldur með börn á framfæri hafa miklar þarfir til húsnæðis, búnaðar og farartækja til að skapa fjölskyldunni öruggt þak yfir höfuðið, tryggja öryggi barna og sinna fjölmörgum skyldum gagnvart uppeldi og störfum. Vandi þessa fólks eykst í sífellu. Ungt barnafólk er margt hvert í skuldagildru vegna langskólanáms eða húsnæðiskaupa og nær vart endum saman, horfist í augu við gjaldþrot handan við hornið og þá blasir veruleikinn við. Sífellt fleiri fjölskyldur þurfa nú að velja á milli greiðslu reikninga og framfærslu fjölskyldunnar.
Seðlabankinn hefur spáð því að kaupmáttur muni rýrna um 25% að meðaltali frá hruni haustið 2008 til ársloka 2011. Vandinn er stór. Við í Framsóknarflokknum höfum í meira en ár ítrekað lagt fram tillögur um almenna niðurfærslu skulda, síðast í gær með tillögum til þjóðarsáttar, aðgerð sem mundi koma að stórum hluta til móts við vanda ungs barnafólks. Ég fagna því að hæstv. félagsmálaráðherra virðist vera að opna augum hvað þetta varðar. Ég gagnrýni hins vegar hann og ríkisstjórnina sem höfðu uppi stór orð um að þessi leið væri ekki fær fyrir um ári, leið sem hefði gert vanda þessa hóps mun minni í dag ef farið hefði verið í leiðréttingaaðgerðirnar fyrir ári.
Atvinnuleysi er mikið. Í febrúar voru 9.729 einstaklingar á aldrinum 16–39 ára atvinnulausir. Þetta er sá hópur sem er líka að eignast börn og framfleyta þeim. Þá voru atvinnulausir samtals um 16.574 þannig að mér reiknast til að þeir sem eru 39 ára og yngri séu tæplega 60% allra atvinnulausra. Langtímaatvinnuleysi hefur í flestum öðrum löndum leitt til verulegra félags- og heilsufarslega vandamála, þjáninga og kostnaðar sem við búum ekki við í dag en með aðgerðaleysi gagnvart þessum hóp köllum við vissulega yfir okkur slíkan kostnað. Er það ásættanlegt?
Virðulegi forseti. Það þarf að grípa til beinna aðgerða. Við verðum að nýta okkur reynslu frændþjóða okkar sem deila af reynslu sinni og efnahagsframförum sem víti til varnaðar. Við megum ekki bíða sama tjón og þær. Við verðum að fyrirbyggja að slíkt gerist hér á landi.
Seðlabankinn gaf það út um daginn að hann muni ekki vinna frekari greiningu á skuldavanda heimilanna. Ég hef kallað eftir slíkri greiningu. Það eru engar skýrslur til sem endurspegla vanda ungs barnafólks, engar tillögur um hvað eigi að gera.
Virðulegi forseti. Hvar er aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar til að mæta (Forseti hringir.) þörfum og vanda ungs barnafólks? Við framsóknarmenn köllum eftir aðgerðum. Við köllum eftir því (Forseti hringir.) að óvissu þessa þjóðfélagshóps verði eytt sem allra fyrst.