rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna 2008 og tengdra atburða, skýrsla nefndar skv. lögum nr. 142/2008.
Hæstv. forseti. Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis, sem birt var í gær, er vissulega afar áhugavert plagg sem við munum án efa ræða í þingsalnum og rædd verður um landið allt ekki bara næstu daga heldur líklega næstu ár. Þessi saga er svo hrikaleg að ég á von á því að hún verði ekki síður rædd utan landsteinanna og kannski tekin sem dæmi um það hversu illa getur farið. Vonandi verður þó þessi íslenska saga, þegar hún liggur öll fyrir, þannig að við getum verið stolt af einhverju. Kannski er þar eitthvert sóknarfæri svo að við notum orð sem mikið var notað á bólutímanum, færi til að gera almennilega upp hvað fór úrskeiðis, draga af því rétta lærdóma og sjá til þess að svipaðir atburðir geti aldrei gerst aftur.
Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka skýrsluhöfundum. Nú er það svo að ég hef ekki frekar en landsmenn aðrir náð að lesa ritið allt á þeim rúma sólarhring sem liðinn er en ég tel samt óhætt að fullyrða að ritið er afskaplega vel unnið. Það dregur vissulega upp dökka mynd, ég átti svo sem ekki von á öðru, en ég held að þetta sé nokkurn veginn rétt mynd. Það er dregin upp mynd af samfélagi sem fór út af sporinu. Auðvitað voru það sérstaklega bankamennirnir, eigendur bankanna, og eigendur og stjórnendur helstu stórfyrirtækja á Íslandi sem fóru út af sporinu og þeir bera auðvitað þyngsta ábyrgð eins og skýrslan dregur fram. En við hljótum einnig að draga til ábyrgðar þá sem hefðu átt að sjá til þess að fyrrnefndir aðilar gætu ekki farið svona rækilega út af sporinu. Það er að hluta gert með þessari skýrslu en vitaskuld er skýrslan ekki lokapunkturinn. Hún er einn áfangi í því að komast yfir það sem gerðist, komast að því hverjir báru á því ábyrgð og draga þá til ábyrgðar. Það verður verkefni samfélagsins alls en hérna verður kannski fyrst og fremst horft á þau verkefni sem snúa upp á ríkisvaldið.
Það verða allir þrír armar ríkisvaldsins að vinna úr þessari skýrslu og reyndar öðru sem liggur fyrir um það sem gerðist á undanförnum árum. Réttarkerfið allt fær kannski stærsta verkefnið eða alla vega flest verkefnin. Þar er mikið verk þegar unnið en ekki minna verk eftir. Það á eftir að fara í gegnum refsikerfið með margs konar verkefni. Það á eftir að höfða alls konar riftunarmál og krefjast skaðabóta fyrir dómi. Sú vinna er rétt að hefjast og það mun sjálfsagt taka allmörg ár að ljúka henni. Það er viðamikið verkefni og við verðum að sjá til þess að réttarkerfið fái það sem það þarf til að geta sinnt því með þeim sóma sem það þarf að geta gert.
Hinir tveir armar ríkisvaldsins hafa ekki síður mikilvæg verkefni fram undan, löggjafarvaldið og framkvæmdarvaldið. Við þurfum að endurskoða þá löggjöf sem var ramminn utan um efnahagslífið á undanförnum árum. Talsvert af þeirri vinnu stendur upp á mitt ráðuneyti og vitaskuld Alþingi sem fer með löggjafarvaldið þegar framkvæmdarvaldið eða ráðuneytið hefur gert tillögur að lagafrumvörpum. Þeirri vinnu er ekki lokið en ég ætla samt að leyfa mér að fullyrða að við höfum dregið upp stóru drættina í því sem þarf að gera þó að eftir eigi að fylla upp í stóru myndina með smáatriðum. Framkvæmdarvaldinu ber líka að sjá til þess að hinar ýmsu ríkisstofnanir, sem hafa eftirlit með efnahagslífinu, geri það eins og til er ætlast. Allmargar þeirra heyra einnig undir mitt ráðuneyti þannig að mér er sá vandi mjög ljós. Þessar stofnanir, sumar hverjar, fengu reyndar harðar ákúrur í skýrslunni sem hér er til umræðu og sérstaklega verður tekið tillit til þeirra í þeirri vinnu sem fram undan er.
Líklega er grunnverkefnið tvíþætt. Það er annars vegar uppgjör við fortíðina og hins vegar að stilla upp fyrir framtíðina. Bæði verkefnin þarf að vinna. Við megum ekki láta uppgjörið hindra okkur í því að horfa til framtíðar en við megum heldur ekki sleppa uppgjörinu. Vitaskuld verður uppgjörið orkufrekt. Það mun taka mikinn tíma og það verður ekki sérstaklega ánægjulegt verkefni en það verður að vinna.
Í grundvallaratriðum hanga þessi tvö verkefni líka saman því að uppgjörið á að sýna okkur hvað fór úrskeiðis og hverju þarf því að breyta. Mitt mat er að í grundvallaratriðum hafi verið rangt gefið. Það má kannski lýsa þessu þannig að í samfélaginu var áhættu skipt þannig að menn gátu teflt djarft. Ef vel fór gátu sumir hagnast verulega, og þessir sumir voru kannski fyrst og fremst helstu eigendur stórfyrirtækja og stjórnendur. En ef illa fór þá fengu margir skellinn. Það er algerlega óviðunandi að skipta áhættu með þessum hætti. Auðvitað eiga menn að geta teflt djarft og tekið áhættu en það á þá líka að gilda að þeir sem hafa mikla hagnaðarvon ef vel gengur þegar þeir tefla djarft að þeir taki líka skell sjálfir. Þeir eiga ekki að geta stillt málum þannig upp að þegar vel gengur þá græði þeir á tá og fingri og lifi í vellystingum praktuglega en þegar illa gengur skilji þeir eftir gjaldþrota hlutafélög og reikning sem dreifist m.a. á skattgreiðendur. Þetta er verkefnið sem við stöndum frammi fyrir og þessi vandi brennur kannski heitar á Íslendingum en flestum öðrum en við skulum hafa í huga að aðrar þjóðir eru í grundvallaratriðum að fást við sama viðfangsefnið og átta sig á því að það var rangt gefið, sérstaklega í fjármálakerfinu.
Við verðum að átta okkur á því að þó skoðanir séu auðvitað skiptar um það hversu mikil afskipti hið opinbera á að hafa af efnahagslífinu almennt þá ætti það að vera hafið yfir allan vafa eftir atburði undanfarinna missira, ekki bara á Íslandi heldur um heim allan, að önnur lögmál gilda um fjármálakerfi og fjármálafyrirtæki en fyrirtæki almennt. Það er einfaldlega þannig að hið opinbera verður að hafa strangt taumhald á fjármálafyrirtækjum, það verður að gæta að því að fjármálafyrirtæki geti ekki leikið þann leik sem ég lýsti hér áðan þar sem teflt var djarft í trausti þess að ef vel færi græddu eigendurnir og helstu stjórnendur en ef illa færi mundi hið opinbera bjarga því sem bjarga þyrfti. Hugtakið á ensku „too big to fail“, eða „of stór til að geta hrunið“, má aldrei skipta máli framar í rekstri fjármálakerfa. Við getum ekki látið það líðast að fjármálafyrirtæki afli fjár í trausti þess að hið opinbera muni hlaupa undir bagga ef menn tefla of djarft og reynast spá rangt fyrir um þróun einhverra stærða eða eitthvað annað í rekstrinum sem menn höfðu í bjartsýni vonað að gengi vel.
Auðvitað hefur hið opinbera hlutverki að gegna í hörðu ári á fjármálamörkuðum. Seðlabankinn á að vera þrautalánveitandi og ríkið hefur ýmis önnur hlutverk en áhættan af rekstri fjármálafyrirtækja á fyrst og fremst að vera hjá eigendum fjármálafyrirtækja. Þeir mega vissulega njóta þess ef vel gengur en þeir eiga líka að bera megnið af skellinum þegar illa gengur.